breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.
Virðulegur forseti. Ég kemst aldrei hjá því að upplifa annað en að það sé verið að tala í raun gegn því að hér ríki samkeppni þegar Samkeppniseftirlitið er talað niður. Að það henti bara sumum þetta fákeppnisumhverfi sem við búum við. Að það henti ágætlega ráðandi öflum að það sé bara frekar auðvelt að svindla vegna þess að eftirlitsstofnanirnar okkar eru ekki nógu burðugar til að fylgjast með því hvort reglum er fylgt. Það hentar bara ágætlega að Fiskistofa sé bara ekki nægilega burðug til þess að sinna sínum verkefnum með fullnægjandi hætti, geti ekki sinnt sínu eftirliti almennilega, geti ekki fylgst með kerfisbundnu svindli og öðru slíku. Það er bara fínt fyrir suma sem sjá sér hag í því að þeim lögum sem við setjum hér sé ekkert endilega alltaf fylgt, a.m.k. ekki gagnvart sumum. Og þetta endalausa niðurrif gagnvart stofnunum sem hafa, einmitt eins og hv. þingmaður kom inn á, verið settar upp af löggjafanum til að standa vörð um hagsmuni almennings. Stundum er mín upplifun sú að við setjum sumar stofnanir á fót til að tikka í einhver box þannig að við virkum sem þjóð meðal þjóða en að það sé ekki í alvörunni alvara á bak við það. Þeir kalla þetta „window dressing“ á ensku. Þetta er bara allt í plati, virðulegi forseti. Þó að þetta sé ekki hárrétt þýðing hjá mér þá er þetta einmitt gert til þess að haka í kassa og segja: Jú, við erum með samkeppniseftirlit og jú, við erum með svona óháða dómstóla. Og jú, við gerum allt þetta og hitt. En ef það hentar okkur ekki alveg þá erum við alveg til í a.m.k. að vanfjármagna eða raða aðeins nöfnum hæfnisnefndar eftir okkar eigin hentugleika eða hvað sem það nú er, vegna þess að þessi grunnprinsipp um að eftirlitsstofnanir, dómstólar og þessi kerfi réttarríkisins séu til þess fallin að vernda okkur öll og séu samfélaginu öllu til hagsbóta — við erum ekki alveg sammála af því að það snertir okkar hagsmuni aðeins of mikið.