breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.
Virðulegi forseti. Í þessu samhengi, af því að við erum að tala hér um samkeppnislögin, samkeppnisréttinn og stofnanir á því sviði, þá held ég að það sé auðvitað okkar hlutverk að standa vaktina, okkar sem trúum á þessar stofnanir, að við sýnum það í verki, sýnum það í orðum okkar að við stöndum með þeim, að við séum trú almannahagsmunum að því leyti að við sýnum það að við sjáum það í verki þegar ágjöf sérhagsmunaaflanna verður sem þyngst. Ég get ekki stillt mig um að nefna það líka t.d. hver afstaða Bandaríkjanna er til samkeppnislaga þar sem talað er um að samkeppnislögin séu jafn mikilvæg og mannréttindaákvæðin í stjórnarskrá fyrir vernd mannréttinda, grundvallarlöggjöf sem sagt. En þessa lagasetningu fengum við vegna þess að við tilheyrum ákveðnu Evrópusamstarfi.