154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.

898. mál
[19:56]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það verður að segjast eins og er að ég undrast svona, hvað á maður að kalla það, viðskiptablöðin hérna á Íslandi og marga stóra í viðskiptaheiminum, hvað þeir eru tilbúnir að níða skóinn af Samkeppniseftirlitinu, gera lítið úr mikilvægi þess og samkeppnislaganna o.s.frv. Maður hefði haldið að hvert sómakært fyrirtæki hefði áhuga á því að hér væri virk og góð samkeppni. En í staðinn er heilu dálkametrunum eytt í að níða skóinn af Samkeppniseftirlitinu sem hefur nú þetta hlutverk. Það sama mætti segja um ákveðinn anga hér inni á þingi sem er mjög duglegur við að tala um eftirlitssamfélagið og eitthvað svona, en er samt ekki, bara svona í hliðarathugasemd, til í að koma upp sjálfstæðu eftirliti með störfum lögreglu en er til í að tala niður það eftirlit sem haft er með því hvort samkeppnislögum sé fylgt eða lögum um fiskveiðar eða hvað það nú er þar sem miklir peningar eru í húfi í viðskiptalífinu.

Mér finnst þetta mjög skrýtinn þankagangur og ég, eins og hv. þingmaður, þakka oft fyrir að við fáum góða löggjöf senda hingað heim.