breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir mjög svo áhugaverða ræðu. Ég vil spyrja hv. þingmann út í einn þátt þessa máls sem hún hefur fjallað um í kvöld. Það er þessi viðleitni ríkisstjórnarinnar til að færa verkefni sem henni er ætlað að sinna yfir á einhverja aðra án þess að sjá til þess að fjármagnið fylgi. Eins og hv. þingmaður minntist á í andsvörum áðan er þetta mál komið til okkar vegna þess að verkefni voru tekin út úr ráðuneytinu og færð til undirstofnunar án þess að þeim verkefnum fylgdi fjármagn. Þetta minnir mann óneitanlega á hvernig ríkisstjórnin hefur farið fram á öðru tilteknu málefnasviði, þ.e. málefnum fatlaðs fólks. Á sínum tíma var fjöldi verkefna sem lutu að þjónustu við fatlað fólk færður yfir til sveitarfélaganna en þrátt fyrir ítrekuð loforð og fjölda viljayfirlýsinga virðist ríkið aldrei hafa staðið við stóru orðin, þ.e. að fjármagna þessa þjónustu með viðhlítandi hætti, hvað þá að tryggja sveitarfélögum úrræði til að fjármagna hana. Það er alltaf verið að endurskoða fjármögnunina, t.d. þegar kemur að NPA-samningum, og alltaf segir ríkisstjórnin að það verði gert meira einhvern tímann í framtíðinni. En hverjar eru afleiðingarnar?