154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.

898. mál
[20:00]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Jú, ég get tekið heils hugar undir með hv. þingmanni. Eins og ég kom inn á í ræðu minni þá leggjum við Píratar mjög mikið upp úr því að ef lög eru sett sem segja fyrir um ákveðið lögbundið verkefni stofnunar þá þarf auðvitað að fylgja því fjármagn til að hægt sé að inna það lögbundna verkefni af hendi. Öðruvísi er þetta eitthvað annað en lagasetning sem við erum að gera, þetta er einhver viljayfirlýsing sem hefur ekki einu sinni neina raunverulega merkingu og er bara í plati. Það er auðvitað ekki góð leið til að styrkja réttarríkið eða trú fólks á því að það skipti einhverju máli hverjir sitja hérna inni og hvað við gerum. Sem lýðræðisflokkur skiptir okkur miklu máli að fólk geti haft traust á löggjafanum og að vinnan sem löggjafinn vinnur sé mikilvæg og að sú vinna standi þegar hún hefur farið í gegnum þrjár umræður og verið afgreidd út af þingi.

Varðandi þetta sem hv. þingmaður nefnir um að færa verkefni yfir á einhvern annan án þess að fjármagn fylgi þá er þetta eitthvað sem hefur — ég held að fara í taugarnar á mér séu ekki alveg nógu sterk orð til að lýsa því hvernig mér líður gagnvart þessu. Þetta er eitthvað sem við sjáum bara aftur og aftur og ég hef vísað til þessa sem bókhaldsbrellu. Þú ert með kostnaðarsaman málaflokk, ert með kostnaðarsöm verkefni sem eru að sliga bókhaldið hjá ríkinu. Þetta er samt sem áður sú þjónusta sem þarf áfram að veita fólki sem á rétt á þessari þjónustu en það er farið í þessar bókhaldsbrellur: Færum þetta yfir á sveitarfélögin og spörum okkur hellings pening á því. Þar er þessi hræðilega firring, að ég tel, að manni líði eins og stjórnvöld telji að þau geti bara afskrifað réttindi fjölda fólks til að lækka aðeins töluna í fjárlögum á hverju ári. Þetta er það sem ég meina með bókhaldsbrellunni. Þau eru ekkert endilega að spá í hvort þessum réttindum verði framfylgt eða ekki. Mér finnst það alveg hræðileg nálgun.