breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.
Virðulegi forseti. Ég tek heils hugar undir orð hv. þingmanns. Ég vildi í mínu seinna andsvari spyrja hv. þingmann út í einn þátt þessa máls sem hefur eitthvað komið til tals í umræðunni. Það eru þessi fyrirhuguðu sameiningaráform ráðherra málaflokksins. Hann hefur boðað fjölmargar sameiningar, eins og hv. þingmaður kom að, undirstofnana síns málefnasviðs og nokkrar hafa þegar farið fram en einhverjar eru enn þá á teikniborðinu. Telur hv. þingmaður að þessar sameiningar séu til þess fallnar að skila einhverjum raunverulegum ábata? Maður fær það nefnilega stundum á tilfinninguna að þetta sé bara verkefni sem hljóma svo vel að ráðherrann vilji ráðast í sameiningar því það gæti litið svo vel út á kosningaplakati í næstu kosningum, eitthvað á þá leið að hann hafi fækkað ríkisstofnunum á sínu sviði um helming. Er þetta kannski ósanngjörn lýsing sem ég teiknaði af þeim hugsanlegu ástæðum sem lágu að baki þessum sameiningaráformum eða er mögulega eitthvað til í því að þessi sameiningaráform séu öll aðallega til þess gerð að fegra kosningabæklinga í næstu kosningum?