154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.

898. mál
[20:04]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þarna kemst hv. þingmaður að kjarna máls. Ég tel að þetta sé mjög líklega rétt hjá hv. þingmanni, góð ályktun. Ég sæi hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Guðlaug Þór Þórðarson, fyrir mér sláandi um sig með að hafa fækkað sínum ríkisstofnunum um helming eins og hv. þingmaður benti á. Það kæmi mér ekkert á óvart, þetta er mjög klassískt orðræðubragð hjá Sjálfstæðisflokknum að slengja einhverju fram burt séð frá því hvort það hafi verið til bóta, hvort það hafi endilega verið sniðugt, en þetta lítur vel út, þetta lúkkar vel eins og maður getur sagt. Þetta er svona eins og þau segjast alltaf ætla að lækka skatta en hækka svo gjöld og alls konar í staðinn, eða setja meira að segja skatt á rafbíla og segjast samt ætla að fara í græn orkuskipti. Þetta eru alltaf svona öfugmæli líka í bland, þannig að jú, það kæmi mér ekki á óvart ef hv. þingmaður hefði hárrétt fyrir sér að það væri eini tilgangurinn með þessu.