breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og fróðleg svör í andsvörum hér áðan. Það kom fram í máli hv. þingmanns að leyfisveitingar hefðu verið færðar úr ráðuneyti til Orkustofnunar fyrir nokkrum árum og mér finnst þetta mjög áhugavert. Svo nokkrum árum seinna erum við hér að fjalla um frumvarp til laga um þjónustugjöld vegna leyfisveitinga og eftirlits. Gæti hv. þingmaður séð fyrir sér að ráðuneytið væri með svona þjónustugjöld varðandi leyfisveitingar sínar, að ráðherra myndi gefa út tímaskrár til þjónustukaupenda við leyfisveitingar? Ég er á þeirri skoðun, svo ég taki það fram, að með því að þurfa að réttlæta kostnað við leyfisveitingu með tímaskráningu og þannig rukka fyrir þá vinnu — og ég tek fram að Landsvirkjun leggur áherslu á að það sé mjög mikilvægt að haldið verði vel utan um tímaskráningar vegna leyfisveitinga og að gjaldið renni til viðkomandi starfsemi — þá vil ég meina að það sé komið á viðskiptasamband við stjórnvaldið. Ég get ekki annað séð en að það sé einn flokkur í þessu landi sem vill grafa undan öllum eftirlitsiðnaði, við getum orðað það þannig, og eftirlitsstarfsemi og væri ekki réttara þá a.m.k. að hafa bara eitt leyfisgjald varðandi hverja virkjun? Það að vera að grafa með þessum hætti undan eftirlitsaðilum — ég get tekið dæmi: Strandveiðimenn hafa kvartað undan því að það sé mikið um dróna sem eru eftir hjá Fiskistofu. Fiskistofumenn sjást ekki í stórútgerðinni. Þeir hafa sumir sagt það við strandveiðimennina að þeir hafi aldrei farið í stóru bátana, stóru skipin, en þeir eiga eftir að senda bréf um að þremur fiskum hafi verið hent í sjóinn. Við getum tekið MAST og dýraverndina líka. Hvar er eftirlitið þar? Handónýt stofnun sem hefur ekki sinnt neinum af sínum verkefnum. (Forseti hringir.) Og spurningin er þessi: Er réttlætanlegt að ríkisstofnun þurfi að réttlæta vinnu sína við veitingu leyfis fyrir umsækjanda um leyfi?