breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta andsvar og mér finnst ég skilja betur hvert hann er að fara með þessum hugleiðingum sínum. Ég get alveg tekið undir að þetta er mjög vandmeðfarið og alls ekki viðeigandi í öllum tilfellum. Og hvernig nálgunin er — ef við gefum okkur að það væri bara leyfisgjald, eitthvert eitt leyfisgjald, þá finnst mér kannski ekki alveg komið til móts við það að sum leyfi geta verið töluvert þyngri í vöfum og tímafrekari en önnur og meira að segja innan sama málaflokks getur það átt við. Þá er ekki verið að taka tillit til þess og það er kostnaðurinn af því að fara þá leið. Ég held að það sé svolítið misjafnt eftir því hvað við er átt, mögulega í þessu tilfelli væri bara hægt að setja há leyfisgjöld og það myndi ná sama markmiði. Ég myndi ekkert endilega setja mig á móti því ef hv. þingmaður væri hérna hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og legði þetta til, frekar en þessa leið sem er farin. Auðvitað væri besta leiðin bara að þessar stofnanir væru fjármagnaðar almennilega til að byrja með en mér finnst samt ekkert að því að fyrirtæki og stofnanir sem eru að græða á því að ákveðið stofnanaumhverfi sé til staðar sem tryggir ákveðið regluverk, sem tryggir ákveðnar leikreglur, sem veitir leyfi fyrir starfsemi o.s.frv., þurfi að greiða eða láta eitthvað af hendi fyrir þá vinnu sem sú stofnun fer í.
Varðandi það hvort ráðuneytin gætu farið að rukka fyrir svona hluti þá held ég að þau rukki fyrir veitta þjónustu en bara samkvæmt þessari gjaldskrá sem við sjáum í fjárlögunum á hverju ári, kannski varðandi hitt og þetta smálegt. En ef við ættum að fara að búa til gjaldskrá yfir tíma sem inntir eru af hendi af starfsmönnum ráðuneytisins þá veit ég ekki alveg hvar það myndi enda. En við erum auðvitað byrjuð aðeins á því kerfi þar sem sumir ráðherrar taka til tímana sem það tekur ráðuneytið að taka saman svör við spurningum þingmanna. Það er til vísir að þessu nú þegar, virðulegi forseti.