breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég tel að þetta mál sé bara gott dæmi um það hvernig viðhorfið til ríkisvaldsins er raunverulega. Ég tel líka að það sé svolítið undarlegt viðhorf í samfélaginu til ríkisvaldsins. Og til hvers hefur það leitt? Jú, þessu landi, þessari þjóð hérna er stjórnað af sérhagsmunasamtökum. Það er algjörlega kristaltært í mínum huga og ef það er eitthvað sem ég hef sannfærst um eftir að hafa verið hérna á þinginu frá haustinu 2021 þá er það það. Varðandi það má nefna t.d. vegabréfsútgáfu, ökuskírteini. Væri ekki rétt að stjórnvaldið myndi gefa upp tímaskýrslu við útgáfu ökuskírteinis og vegabréfs og fólkið myndi borga samkvæmt því en ekki samkvæmt gjaldskrá? Það eru 34 starfsmenn hjá Orkustofnun, ég taldi. Tímagjaldið hjá bifvélavirkja er 15.000 kall. Er réttlætanlegt að leggja í þessa vinnu við tímaskráningu og annað, og fyrir hversu mikið? Gróft áætlað 6–13 milljónir, til að hantera leyfi sem veita leyfi til virkjunarframkvæmda (Forseti hringir.) sem geta kostað tugi milljarða og munu kosta tugi, tugi milljarða ef ekki meira en 100 milljarða, a.m.k. 10 milljarða. Og þá ætla þeir að vera með löggjöf, jú, 6–13 milljónir. (Forseti hringir.) Þetta er ekki einn starfsmaður.