breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.
Virðulegi forseti. Ég tel mig knúinn til að fara hérna upp í seinni ræðu og að reifa þetta mál aðeins betur. Ég vil taka fram í ljósi andsvara við hv. þm. Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur að þegar ég segi að landinu sé stjórnað af sérhagsmunahópum þá á ég við að sjálfsögðu óbeint. Það eru flokkar sem eru að reyna að berjast gegn því og það er vel. Ég tel að óhagkvæmni íslensks samfélags sé mikið til að kenna þessum gríðarlegu áhrifum sérhagsmunahópa. Gildisleysi sem því fylgir er algjört, menn eru alltaf að bjarga sér á Íslandi. Það skiptir ekki máli, það er alltaf verið að bjarga sér. Það endurspeglast í vinnu sérhagsmunahópa.
Þetta frumvarp sem lýtur að lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar, þjónustugjöld, tel ég vera þannig að það eigi — ef ríkisvaldið eða Orkustofnun á að hafa sérstaka tekjustofna þá á það að vera með ákveðnum leyfisgjöldum. Stofnunin á ekki að þurfa að réttlæta það með tímaskráningarskýrslum og öðrum hætti, eins og kemur fram í umsögn Landsvirkjunar, fyrir leyfisbeiðanda hversu mikla vinnu og hversu mikla fjárhæð á að borga fyrir leyfið. Ég tel að það sé miklu betra fyrir stofnunina og ríkisvaldið að það gefi bara út lista: Svona mikið kostar að sækja um þetta hérna leyfi og svona mikið kostar sækja um þetta þarna leyfi, þá kannski bara eftir stærð virkjana t.d.
Það kemur fram í greinargerð að það sé gert ráð fyrir því að kostnaði við hverja leyfisveitingu verði ekki náð. Það kemur fram í kaflanum Mat á áhrifum. Þar er gert ráð fyrir að verðskráin muni þróast en búast megi við að umrædd gjaldtaka muni ekki fjármagna að fullu þann kostnað sem hlýst af vinnu við leyfisveitingar. Það er verið að leggja út í vinnu á stofnunina að skrá niður og réttlæta. Það er miklu, miklu einfaldara að setja bara verðskrá: Þetta kosta leyfin og þetta kostar eftirlitið í hvert sinn. Ef einhver hefur áhuga á framleiðni hjá stofnuninni myndi það spara mikinn tíma fyrir starfsmennina að þurfa ekki alltaf að vera að passa sig að þeir séu örugglega núna að vinna út af þessari leyfisumsókn og nú séu þeir að vinna þarna. Það myndi spara mikið fyrir starfsmennina, ég er alveg sannfærður um það.
Ávinningurinn, tekjur Orkustofnunar vegna þessara breytinga, er á bilinu 6–13 millj. kr. á ársgrundvelli. Ég myndi telja að einn starfsmaður kostaði svona 14 milljónir. Þetta nær ekki einum starfsmanni. Þetta er hálfur starfsmaður ef við tökum lægri töluna. Hérna er mikið í lagt til að tryggja að vanfjármögnuð stofnun, 34 manna stofnun samkvæmt talningu minni, fái smá aukapening, 6–13 milljónir. Ég er ekki með tölur yfir það hvað stofnunin hefur á ári á fjárlögum en þetta eru algerir smápeningar. Þetta sýnir líka að viðhorfið hjá stjórnvöldum, hjá ríkisstjórninni, gagnvart þessari mikilvægu stofnun, sem sér um eina mikilvægustu auðlind þjóðarinnar — Orkustofnun og Hafrannsóknastofnun eru rannsóknastofnanir í helstu auðlindum þjóðarinnar. Það stendur beinlínis varðandi hlutverk Orkustofnunar: Að standa fyrir rannsóknum á orkubúskap þjóðarinnar, að vera ríkisstjórninni til ráðuneytis, að safna gögnum um orkuauðlindir og aðrar jarðrænar auðlindir og að vinna að áætlanagerð til langs tíma um orkubúskap þjóðarinnar. Þessi stofnun á ekki að vera að selja hálftímann eða korter, selja tíma sinn til þeirra sem sækja um leyfi eða eiga að vera í eftirliti. Það er miklu einfaldara bara að auka fjárheimildir þessarar stofnunar um 6–13 milljónir, miklu betra, sparar mikinn tíma hjá stofnuninni.
Það að leyfisveitingarskylda hafi verið færð frá ráðuneyti til Orkustofnunar og síðan farið að rukka með þessum hætti sýnir náttúrlega viðhorf til ríkisvaldsins sem er algerlega með eindæmum. Ég segi ekki að það sé þannig í samfélaginu en íslenskt ríkisvald, miðstjórnarvald, er ótrúlega veikt. Við erum með netverslanir, búin að vera í fjögur ár með netverslanir með áfengi, og allir sem skoða það vita að netverslun með áfengi er smásala á áfengi. Við erum með áfengislög, þar sem eru mjög þungar refsingar, sex ára fangelsi, þar sem segir að íslenska ríkið sé með einkasölu á áfengi í smásölu. Það að ákæruvaldið og lögreglan, sem ber lagaskylda til að sjá til þess að þeir sem brjóti lög sæti réttmætum viðurlögum, skv. 2. mgr. 18. gr. laga um meðferð sakamála, skuli ekki gera neitt og komast upp með það er algjört hneyksli fyrir íslenskt ríkisvald, algjört hneyksli. Þetta myndi ekki gerast í neinu öðru ríki Evrópu, engu ríki Evrópu, alveg örugglega ekki á Norðurlöndunum, af því að þar eru gildi. Þar eru borgaraleg gildi og aðeins borgaraleg gildi um það að fara eftir lögum og reglum í borgaralegu samfélagi, en ekki á Íslandi. Það eru svo miklir peningar þarna á bak við. Það eru nefnilega 26 milljarðar sem koma í ríkiskassann með áfengisgjaldi. Það eru miklir peningar þar.
Ég tel að hér sé verið að sjá til þess að það verði viðskiptasamband milli þeirra sem sækja um leyfi, sæta eftirliti og þurfa á þjónustu Orkustofnunar að halda. Það er ekki verið að leita til stjórnvalds, það verður viðskiptasamband þarna nánast á jafnréttisgrundvelli. Það er það sem verður gert og t.d. ef aðili sem sækir um leyfi er óánægður með reikninginn getur hann farið með það til umboðsmanns Alþingis, getur kært það til hærra stjórnsýslustigs o.s.frv. til að kvarta yfir því að tímaskráningin hjá Orkustofnun hafi ekki verið rétt þegar hún var að fjalla um leyfið. Það er ekki gott í stjórnsýslu að lenda í því að þurfa að réttlæta tilvist sína gagnvart leyfisbeiðendum í svona mikilvægum málum með tímaskráningu og öðru slíku. Af hverju er ekki t.d. varðandi ökuskírteini, vegabréf og önnur leyfi, af hverju er ekki gefin upp tímaskýrsla varðandi útgáfu ökuskírteinis? Mér finnst það bara mjög sanngjarnt, líka varðandi vegabréf. Það kostar 10.000, 12.000, 13.000, 14.000 kall að fá vegabréf með hraði. Það tæki skemmri tíma en að bíða í þrjár vikur. Samt þarf að borga hraðar fyrir að þetta sé afgreitt skjótt heldur en lengi. Ég hefði haldið að tímaskráningin væri miklu minni í vegabréfinu ef það væri með hraði gert, myndi spara tíma. Af hverju ekki tímaskráning þar? Jú, af því að þetta er almenningur, þetta er litla fólkið í samfélaginu. Þá er allt í lagi að hafa gjaldið hátt. Þá er það allt í lagi, af því að aðgengi almennings að stjórnvöldum er bara allt öðruvísi en sérhagsmunahópanna.
Svo er þessi hugmyndafræði um að veikja ríkisvaldið algerlega út í eitt og nógu veikt er það nú fyrir. Við sjáum það t.d. í áfengismálunum. Við sjáum það t.d. varðandi dýraníð. Það er stofnun sem heitir MAST. Það kom ár eftir ár sami bóndabærinn á Vesturlandi, sama dýraníðsvandamálið. Það er ekkert gert. Það kemur upphlaup, klassískt upphlaup í samfélaginu í fjölmiðlum og það mun koma aftur í framtíðinni, ég get nánast veðjað upp á það, af því að eftirlitsaðilarnir klikka. Við sjáum eftirlitsstöð Fiskistofu. Ég hef nú verið að fylgjast með og sett mig inn í málefni strandveiðimanna, hvernig eftirlitið er gagnvart þeim en ekki gagnvart öðrum.
Ég tel að þessi lög sýni ákveðið viðhorf til ríkisins og það að vera að setja svona þjónustugjöld vegna vanfjármögnunar stofnunar sé ekki til sóma fyrir íslenskt ríkisvald. Það er ekki svona sem á að fjármagna vanfjármagnaðar stofnanir. Bíðum síðan við, þegar Orkustofnun verður sameinuð Umhverfisstofnun verður örugglega skrifuð fyrirspurn eða kemur í fjölmiðlum: Jú, heyrðu, það sparaði ekki neitt. Ef þú ert með tvær grindhoraðar manneskjur og þær taka saman, það verður ekki til nein fita við það. Ef þú tekur tvær vanfjármagnaðar stofnanir sem eru algerlega á horriminni, það verður enginn sparnaður við það. Verkefnunum fækkar ekki. Það gerist ekki. Það kannski að konan á símanum hætti, að það verði einn símsvari — það er löngu búið að segja konunni á símanum upp, fyrir löngu, löngu síðan. Það er búið að spara þann kostnað allan.
Við erum að tala um umhverfismál og loftslagsmál. Þetta á að heita loftslagsstofnun, skilst mér, þessi sameinaða stofnun, og það er nú þannig að fyndnasti kaflinn í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar frá 2021 er fjórði kaflinn, mig minnir að það sé á bls. 9, það er að vera best í heimi. Við ætlum að vera best í heimi í loftslagsmálum. Haldið þið að loftslagsstofnun verði besta stofnun í heimi? Nei, hún verður það örugglega ekki. Hún er vanfjármögnuð, á horriminni og ég bara þakka fyrir að þetta hugsjónafólk sem er að vinna þarna haldist í vinnu vegna þess að það er eftirspurn eftir fólki sem er með þessa þekkingu úti í heimi.