154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

Seðlabanki Íslands.

662. mál
[20:34]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir framsöguna. Það segir í lok greinargerðar nefndarálitsins, með leyfi forseta:

„Loks fellur brott heimild Seðlabankans til reglusetningar um gjald fyrir afnot af innviðum og mörk á gjaldtöku af hálfu greiðsluþjónustuveitanda. Byggist það á því að nú þegar er fyrir hendi heimild skv. 43. gr. laga um Seðlabanka Íslands sem nær til gjaldtöku vegna greiðslumiðlunar. Samhliða er lagt til að heimild til að setja mörk á gjaldtöku af hálfu greiðsluþjónustuveitanda falli niður til þess að koma til móts við athugasemdir varðandi inngrip Seðlabankans á samkeppnismarkaði.“

Er verið að halda því fram hérna að það sé einhver heimild í 43. gr. um að setja mörk á gjaldtöku af hálfu greiðsluvanda? Það virðist vera ef maður les textann: „Byggist það á því að nú þegar er fyrir hendi heimild.“ Maður les þetta bara beint. „Loks fellur brott heimild Seðlabankans til reglusetningar um gjald fyrir afnot af innviðum og mörk á gjaldtöku af hálfu greiðsluþjónustuveitanda.“

Síðan er vitnað til 43. gr. laga um Seðlabankann. Það er bara gjaldtaka Seðlabankans. (Gripið fram í: Já.) Það er tekið fram. Varðandi mörkin þá er með þessu verið að afnema þessi mörk, að Seðlabankinn — að þetta lúti að samkeppnismarkaði. Seðlabankinn hefur vald til að hafa eftirlit með greiðslumiðlun í landinu og að þeir geti ekki virkilega haft gjaldskrá um það, sett mörk á gjaldtökuna af hálfu greiðsluþjónustuveitanda, þá er með því verið að færa bönkunum allan þennan markað. Það er svo einfalt mál. Bankarnir geta þá hækkað gjaldið til að veita aðgang að reikningunum eins og enginn sé morgundagurinn og stofnað sín eigin fyrirtæki vegna þess að þau myndu græða á því að það væri þeirra eigið fyrirtæki sem gæti tekið þetta háa gjald og litlu aðilarnir, litlu fyrirtækin, nýsköpunarfyrirtækin, komast ekki inn á markaðinn vegna þess að bankarnir ætla sér að hirða þennan markað. Að Seðlabanki Íslands skuli svo voga sér að segja: Nei, við viljum ekki taka þetta. Við þorum ekki að setja mörkin af því að það er samkeppnismarkaður. Samkeppnisréttur (Forseti hringir.) er þannig að það er allt samfélagið sem þarf að taka þátt í því að það sé samkeppnismarkaður. Það er ekki bara ein vanfjármögnuð stofnun sem þarf að gera það, svo það liggi algjörlega fyrir. (Forseti hringir.) Að Seðlabankinn skuli vera að gera þetta er algjört hneyksli, að vera að óska eftir þessu. Og að litla Alþingi skuli fara eftir því eins og enginn sé morgundagurinn og það að meiri hluti (Forseti hringir.) nefndarinnar skuli gera það líka.