154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

Seðlabanki Íslands.

662. mál
[20:37]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þegar frumvarpið var samið upphaflega var 43. gr. laga um Seðlabankann líka til staðar. Það er nákvæmlega ekkert að því að segja í 2. gr. að Seðlabankanum sé heimilt að taka gjald fyrir afnot af innviðum. Það er nákvæmlega ekkert að því að hafa þetta á tveimur stöðum, ekki neitt. En þetta er hins vegar notað sem yfirvarp gagnvart því að taka út mjög mikilvægt ákvæði sem er það að Seðlabankinn má setja mörk á gjaldtöku af hálfu greiðsluþjónustuveitenda. Ef það eru engin mörk sett, ef stjórnvöld geta ekki sett nein mörk, þá geta bankarnir t.d. keyrt þetta gjald upp úr öllu valdi svo enginn komist á þennan markað. Svo einfalt er það. Og hver á að taka á þessu máli? Jú, þá þurfa litlu fyrirtækin að kæra til Samkeppnisstofnunar vegna hás gjalds eða leita réttar síns erlendis, í Brussel, og það er ekki í fyrsta sinn sem Íslendingar þurfa að leita réttar síns erlendis hvað þetta varðar eða önnur mál. Við höfum gert það síðan Jón Hreggviðsson var uppi a.m.k. Og núna verður það þannig, ef gjaldið verður það hátt að aðrir komast ekki inn á þennan markað vegna þess að það verður svo rosalega dýrt, þá verður ekkert úr þessu. Það hafa bankarnir algerlega í hendi sér og Seðlabanki Íslands treystir sér ekki að segja: Við ætlum að setja mörk, þetta er eðlilegt gjald, þetta er hámarkið sem má gilda vegna þess að við teljum eðlilegt að aðrir aðilar fái að komast inn á þennan markað.

Athugum það að það kostar ekki neitt að veita aðgang að bankareikningum einstaklinga, sáralítið. Þetta er tryggt í PSD2, Payment Service Directive 2, en íslensk stjórnvöld og Seðlabanki Íslands treysta sér ekki til að hafa þetta í íslenskum lögum. Við þurfum að fara að skoða tilskipunina núna, tilskipun um greiðsluþjónustu nr. 2. Það er það sem þarf að gera. Það byggist á því að þegar er fyrir hendi heimild skv. 43. gr. laga um Seðlabanka Íslands, sem nær til gjaldtöku vegna greiðslumiðlunar. Þetta er algert yfirvarp. Það er verið að nota það að gjaldtakan sé í 40. gr. og í leiðinni á að taka mörkin burtu, að stjórnvöld geti sett mörk. Það er tryggt í Evrópuréttinum. Það er tryggt í PSD2, það er tryggt í greiðslumiðlunartilskipun nr. 2. (Forseti hringir.) En það er klárt mál að Seðlabanki Íslands treystir sér ekki til þess að setja þessa einföldu reglu sem á að tryggja samkeppni á þessum markaði. (Forseti hringir.) Það er ekki verið að gera það með þessum lögum. Það er ekki verið að gera það með því að fella þetta út.