154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

Seðlabanki Íslands.

662. mál
[20:40]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Steinunn Þóra Árnadóttir) (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Með þessu frumvarpi verður sett sú skylda á lánastofnanir hér á landi að þær taki þátt í greiðslumiðluninni. (EÁ: …geta stofnað fyrirtæki.)

(Forseti (AIJ): Ekki tveggja manna tal.)

Það liggur alveg skýrt fyrir og það er búið að afmarka enn frekar hvernig þetta skuli gera. En það er rétt sem hv. þingmaður segir, þetta verður á samkeppnismarkaði. Það er mikil þróun í gangi hvað varðar tækni og búnað og ég tel ljóst að það munu ýmis fyrirtæki koma inn á þennan markað, þau hafa nú þegar m.a. í umsögn um málið lýst yfir áhuga sínum og vinnu hvað það varðar. Að sjálfsögðu verður fylgst með því hvernig samkeppni verður háttað í þessum málum eins og öðrum. (Gripið fram í.) En ég tel líkt og ég sagði hér áðan að með samþykkt frumvarpsins séum við að tryggja öryggi greiðslumiðlunar hér á landi og það er í samræmi við ábendingar sem var komið á framfæri við þjóðaröryggisráð. Það skiptir máli fyrir allan almenning í landinu.

(Forseti (AIJ): Forseti minnir á að gefa ræðumönnum hljóð í pontu.)