Seðlabanki Íslands.
Virðulegi forseti. Ég þakka framsögumanni fyrir góða framsögu. Mig langaði að fara aðeins dýpra ofan í samkeppnishlutann. Nú er það þannig að í þessu frumvarpi er verið að veita Seðlabankanum leyfi til að byggja upp innlenda greiðslumiðlun, af því að vegna almannaöryggis og þjóðaröryggis getum við ekki samkvæmt þessu frumvarpi treyst á þessa erlendu aðila. Það er líka gerð krafa um að allir bankar, eins og hv. þingmaður nefndi, taki þátt í þessari greiðslumiðlun. Þegar vel er að gáð má sjá að í greinargerðinni kemur þó nokkuð mikið af athugasemdum úr samráðsgátt. Eins er í nefndaráliti fjallað um að það hafi komið fram alvarlegar athugasemdir um samkeppnismál. Mig langar í því sambandi að forvitnast um það hvort innan nefndarinnar var óskað sérstaklega eftir lögfræðiálitum hvað þetta varðar, um það hvort þetta stæðist stjórnarskrá og ýmislegt annað út frá samkeppnissjónarmiðum, hvort það stæðist EES-samninginn og ýmsa aðra samninga sem undir þetta falla, m.a. PSD2-tilskipunina. Það væri áhugavert að heyra frá hv. þingmanni hvernig nefndin komst að þeirri niðurstöðu, hvort ráðuneytið hafi bara sagt að það væri í lagi eða hvort lögfræðiálit og annað var notað til að komast að þeirri niðurstöðu að þetta brjóti ekki í bága við samkeppnislög.