154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

Seðlabanki Íslands.

662. mál
[20:44]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Steinunn Þóra Árnadóttir) (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Nei, það var nú enginn sem kallaði eftir lögfræðiáliti við vinnslu þessa máls en það var haft mikið samráð við Seðlabanka Íslands. Það var einnig byggt á umsögn og samtali við Samkeppniseftirlitið þegar kemur að þessu máli og líkt og ég rakti hér í máli mínu þá er það skilningur meiri hluta nefndarinnar. Það var enginn sem hefur hreyft neinum andmælum við því að þetta frumvarp sé í samræmi við lög og það sé í samræmi við stjórnarskrána. Hins vegar var þeirri ábendingu tekið að það mætti skýra frekar reglusetningarheimildir Seðlabankans. Það er verið að gera það og það held ég að sé til bóta því þar með liggur hún mjög skýrt fyrir. En enginn í nefndinni var í nokkrum vafa um það, svo að ég í það minnsta hafi orðið vör við, að þetta frumvarp bryti á nokkurn hátt í bága við stjórnarskrá Íslands. En það væri hægt að skýra hluti enn frekar og það var gert.