Seðlabanki Íslands.
Virðulegi forseti. Mig langar að benda hv. þingmanni á að það kemur fram í umsögnum sem komu í samráðsgátt, sem talað er um í fimmta kafla frumvarpsins, að það hafi verið gerðar athugasemdir um það hvort þetta stæðist stjórnarskrá. Mig langar enn fremur að benda hv. þingmanni á að það er fjallað um það í umsögninni að það hafi komið fram hér athugasemdir frá fyrirtækjum sem eru á þessum markaði. Mér finnst mjög alvarlegt að það sé einfaldlega tekin ákvörðun um það að nefndin, ég veit nú ekki hversu lögfróð nefndin er — hvort hún er að taka ákvarðanir beint um það hvort þetta standist stjórnarskrá eða ekki og hvort það standist samkeppnislög og samning um Evrópska efnahagssvæðið. Ég hefði haldið að það hefði verið um að gera að biðja um lögfræðiálit til að fá það algjörlega á hreint þannig að við séum ekki að fara að byggja upp eitthvert kerfi fyrir mörg hundruð milljónir vegna þess að það á eftir að kosta hundruð milljóna að búa til þetta kerfi og skipta út eða bjóða upp á aðra posa í öllum þeim verslunum sem eiga að geta tekið á móti þessum greiðslum. Við erum að tala um jafnvel hátt í milljarð í kostnað og það stenst kannski ekki stjórnarskrá. Ég held að það sé alveg augljóst að þetta er mál sem þarf að skoða mun betur og ég óska eftir því, hæstv. forseti, að þetta fari aftur til nefndar eftir þessa umræðu.