Seðlabanki Íslands.
Herra forseti. Auðvitað er það þannig að ef hv. þingmaður óskar eftir því að frumvarp gangi til nefndar þá hlýtur það bara svo að vera. En ég verð nú bara að lýsa yfir furðu minni á því að við meðferð málsins, sem var nú alldrjúg inni í efnahags- og viðskiptanefnd, hafi þá fulltrúi Pírata ekki varpað upp þessum spurningum eða leitað frekari svara ef talið var að svo þyrfti að vera, því til þess er jú málsmeðferðin í þingnefndum. En ég verð þá bara að endurtaka mig hér og segja það sem ég hef áður sagt, að hér er verið að veita Seðlabankanum skýrar reglusetningarheimildir og að slíkt sé í fullu samræmi við lögbundið hlutverk Seðlabankans um að stuðla að fjármálastöðugleika og traustri og öruggri fjármálastarfsemi og að það verði ekki fallist á það að með frumvarpinu sé Seðlabankinn að stíga inn á samkeppnismarkað, en fallist á það að textinn gæti verið skýrari um það hvað það er sem Seðlabankanum er ætlað að gera á grundvelli frumvarpsins og það er m.a. það sem er lagt til í breytingartillögum meiri hluta nefndarinnar.