154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

Seðlabanki Íslands.

662. mál
[20:51]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Hér mælir staðgengill fyrir nefndaráliti 1. minni hluta um frumvarp til laga um breytingar á lögum um Seðlabanka Íslands, nr. 92/2019, rekstraröryggi greiðslumiðlunar. Fyrsti minni hluti samanstendur af hv. þm. Oddnýju G. Harðardóttur sem er erlendis vegna þingstarfa.

Fyrsti minni hluti fagnar því að loksins er komið fram frumvarp sem felur í sér að veita Seðlabanka Íslands heimildir til reglusetningar á sviði greiðslumiðlunar og rekstraröryggis fjármálainnviða þannig að það verði styrkt. Bankinn fær heimildir, verði frumvarpið að lögum, til að setja reglur sem auka viðnámsþrótt, öryggi og virkni greiðslumiðlunar hér á landi. Heimildir Seðlabankans í þessum efnum eru mikilvægar til að fyrirbyggja og bregðast við hvers konar ófyrirséðum aðstæðum í greiðslumiðlun sem kynnu að hafa áhrif á viðnámsþrótt, öryggi og virkni greiðslumiðlunar. Aukin samkeppni á þessu sviði er líkleg til að skila sér í minni kostnaði og betri þjónustu við neytendur. Með auknu hagræði í viðskiptum sem fara fram með greiðslukortum, skýrum greiðsluferlum og samskiptaleiðum, auknum viðnámsþrótti og frekari nýtingu á innlendum innviðum greiðslumiðlunar með reikning í reikning-greiðsluleið má skila ábata til neytenda. Þetta er því spurning um neytendavernd og reyndar einnig þjóðaröryggi.

Notkun greiðslukorta og greiðslumiðlunar hér á landi er margfalt dýrari en í nágrannaríkjunum og það er einkum vegna þess að við erum háð erlendum aðilum. Heimildargjöf og uppgjör innlendra debetkorta fer fram erlendis. Íslenskir neytendur eru ekki bara að greiða til íslenskra banka heldur borga þeir einnig til Visa og Mastercard í útlöndum, svo dæmi séu tekin. Hagnaður bankanna af þessu fyrirkomulagi hleypur á milljörðum en fyrirkomulagið er okkur neytendum mjög kostnaðarsamt því allir milliliðir vilja auðvitað fá sinn skerf af kökunni. Við borgum meira en aðrir fyrir dýrar lausnir sem uppfylla heldur ekki okkar ýtrustu öryggisskilyrði.

Ef ekkert er að gert mun það fyrirkomulag sem við búum við ógna þjóðaröryggi, líkt og Már Guðmundsson, þáverandi seðlabankastjóri, benti á árið 2019 með bréfi til þjóðaröryggisráðs. Fjármálastöðugleikanefnd hefur síðan þá mörgum sinnum áréttað í yfirlýsingu sinni mikilvægi þess að auka öryggi í innlendri greiðslumiðlun til að tryggja rekstrarsamfellu og vísað m.a. til vaxandi netógnar. Þjóðaröryggisráð hefur ítrekað fjallað um málið og bent á að tryggja þurfi fullnægjandi innlenda, óháða smágreiðslulausn þar sem greiðslur og uppgjör fari fram á innviðum undir innlendri stjórn og séu ekki háð fjarskiptum til og frá landinu. Við þurfum með öðrum orðum sjálfstæðar og óháðar greiðslulausnir, lausnir sem eru bæði ódýrari en þær sem við búum við og einnig öruggari. Krafan ætti að vera sú að ávallt séu til staðar virkar lausnir sem lúta í einu og öllu íslenskri löggjöf um eignarhald, umráða- og notkunarrétt og eru algerlega óháðar inngripum erlendra aðila sem gætu ógnað innlendri greiðslumiðlun og fjármálastöðugleika. Það þarf bæði að auka samfélagslegan ábata en einnig tryggja þjóðaröryggi eins og áður var sagt.

Traust og örugg greiðslumiðlun er ein undirstaða virkni hagkerfisins og efnahagslegrar velsældar. Á undanförnum árum hefur áhætta vegna greiðslukerfa á Íslandi aukist. Aukin ógn á heimsvísu sem snýr að netöryggismálum, stríðsástand í Evrópu og aukin sundrung á alþjóðavísu hefur aukið enn á þörf fyrir bættan viðnámsþrótt greiðslukerfa. Málið varðar ekki einungis þjóðaröryggi heldur einnig hag almennings og leiðir til að auka samfélagslegan ábata. Um samfélagslegan ábata af kerfislega mikilvægum innviðum er fjallað um í hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið sem kom út árið 2018. Þar segir m.a. þetta, með leyfi forseta:

„Meta þarf hvaða kerfislega mikilvægu innviðir eigi að standa utan samkeppnisumhverfis til að tryggja þjóðhagsvarúð og hagkvæmni í bankakerfinu. Skoða má hvort æskilegt sé að stjórnvöld gangi lengra í viðleitni til að auka samfélagslegan ábata af samstarfi í innviðum.“

Undir þetta sjónarmið tekur sú er skrifar álit 1. minni hluta.

Í greinargerð með frumvarpinu er umfjöllun um hvað nágrannaríki okkar eru að gera í þessum efnum. Þau eru öll að styrkja lagaumhverfi og heimildir til að tryggja örugga greiðslumiðlun innan hvers ríkis fyrir sig. Það kemur einnig fram í greinargerðinni að Evrópusambandið ræðir örugga greiðslumiðlun í stefnuyfirlýsingunni sinni um smágreiðslumiðlun, greiðslumiðlun sem ætlað er að ýta undir evrópskar lausnir sem séu öruggar og skilvirkar og mæti auknum áskorunum um sjálfsstjórn Evrópu á þessum sviðum. Þar kemur fram að ekki sé hægt að treysta eingöngu á alþjóðlega aðila sem muni ekki eða geti ekki að fullu leyti sinnt þörfum evrópskra notenda greiðsluþjónustu og enn fremur að ekki sé hægt að útiloka að spenna í alþjóðamálum geti haft neikvæð áhrif á snurðulausa virkni evrópskra greiðslukerfa. Til viðbótar getur það að vera háð örfáum stórum greiðsluþjónustuveitum leitt til skorts á samkeppni sem síðan kemur niður á neytendum. Þess vegna er mikilvægt að hanna evrópska lausn og stoppa í þær glufur sem nú eru til staðar.

Við þetta má svo bæta að forsætisnefnd Norðurlandaráðs hefur samþykkt að beina þeim tilmælum til ríkisstjórna Norðurlanda að koma á sameiginlegu norrænu greiðslukerfi. Á Norðurlöndunum búa í dag u.þ.b. 27 milljónir manna og sem heild eru löndin sterk á alþjóðavettvangi. Ef leitað væri norrænna lausna, svo sem á greiðslumiðlun, fylgdi því ávinningur sem gerði hlutina ódýrari og öruggari frekar en ef við gerðum hlutina hvert í sínu horni. Það er mjög mikilvægt að Ísland dragist ekki aftur úr og við verðum að taka með lagasetningu á undirliggjandi áhættu sem tengist greiðslumiðlun.

Aðeins hérna um breytingartillögur meiri hlutans. Fyrsti minni hluti tekur undir með Neytendasamtökunum, sem fram kom m.a. í umsögn samtakanna þegar frumvarpið var í samráðsgátt, um að það sé hagsmunamál fyrir neytendur að efla og auka samkeppni á markaði. Neytendasamtökin bentu einnig á að huga þyrfti sérstaklega að hagkvæmni innlendra, óháðra smágreiðslulausna og neytendaverndar við útfærslu hennar.

Meiri hluti nefndarinnar leggur til að fella brott ákvæði í 2. gr. frumvarpsins um gjald fyrir afnot af innviðum og mörk á gjaldtöku af hálfu greiðsluþjónustuveitenda. Seðlabankinn á og rekur alla greiðslumiðlun milli banka og sparisjóða á Íslandi. Þessi háttur er viðhafður í öllum löndum, þ.e. seðlabankar sem gefa út viðkomandi gjaldmiðil eru þeir einu sem annast að endingu greiðsluuppgjör fyrir viðkomandi gjaldmiðil. Aðgengi banka og sparisjóða að þessum kerfum er forsenda þess að þeir fái starfsleyfi. Bankar og sparisjóðir greiða undantekningarlaust fyrir aðgengi að kerfunum. Seðlabanka Íslands er eins og öðrum seðlabönkum óheimilt að selja þessa þjónustu með hagnaðarsjónarmið að leiðarljósi en gjaldtakan miðast aðeins og eingöngu við raunkostnað við rekstur kerfanna. Að taka út heimild til gjaldtöku sem byggist á raunkostnaði fyrir sameiginlega innviði í þágu alls fjármálakerfisins, með öryggi og hagkvæmni að leiðarljósi, getur ekki talist eðlilegt. Tilgangur þessa ákvæðis er einnig að gæta að neytendum þannig að með reglum verði hægt að takmarka kostnað sem lagður verði á viðskiptavini banka vegna millifærslna. Þess vegna leggst 1. minni hluti gegn þessari breytingu á frumvarpinu enda er rík ástæða til að gæta að neytendum í þessum efnum.

Að teknu tilliti til framangreinds styður þó 1. minni hluti frumvarpið óbreytt og undir þetta nefndarálit skrifar Oddný G. Harðardóttir.