154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

Seðlabanki Íslands.

662. mál
[21:01]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mig langaði að þakka hv. þingmanni fyrir góðan lestur á frumvarpi kollega síns en mig langar samt aðeins að spyrja hæstv. ráðherra — nei, kannski ráðherra í framtíðinni — hv. þingmann varðandi þetta síðasta, 2. gr. Í þessu frumvarpi og nefndaráliti meiri hlutans er það mjög oft tekið fram, eins og hér t.d., með leyfi forseta:

„[F]ellst meiri hlutinn ekki á skilning umsagnaraðila sem telja að Seðlabankinn sé með frumvarpinu að stíga inn á samkeppnismarkað þannig að því sé teflt í tvísýnu hvort frumvarpið sé í samræmi við stjórnarskrá.“

Það stendur hins vegar aðeins seinna í nefndaráliti meiri hlutans:

„Samhliða er lagt til að heimild til að setja mörk á gjaldtöku af hálfu greiðsluþjónustuveitanda falli niður til þess að koma til móts við athugasemdir varðandi inngrip Seðlabankans á samkeppnismarkaði.“

Með öðrum orðum: Fyrst segja þau að þetta sé ekki inngrip á samkeppnismarkað, en vegna þess að þetta sé inngrip á samkeppnismarkað þá þurfi að fjarlægja þessa heimild til að hafa hámark á gjaldtöku greiðsluþjónustunnar. Við þekkjum það nú öll að við erum þegar að borga allt of há færslugjöld, hvort sem við erum að nota debet- eða kreditkort, en með því að fjarlægja þessa setningu, sem er einmitt það sem minni hlutinn mótmælir, þá erum við í rauninni að gefa greiðslukortafyrirtækjunum öllum bara færi á að geta rukkað okkur um 500 kall eða þúsundkall fyrir hverja færslu ef þau vilja.