Seðlabanki Íslands.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Það er ekki einungis það að Seðlabankinn megi ekki rukka fyrir sína þjónustu heldur er hreint og klárt verið að taka út heimild Seðlabankans til að setja takmörk á það hvað aðrar greiðsluþjónustuveitendur rukka. Þetta er ótrúlega alvarlegt. Þarna erum við að sjá að það á bara að leyfa hvaða færslugjöld sem er, þegar við förum út í búð og ætlum að borga eitthvað. Ekki ráðum við því hvaða greiðslumiðlun er til staðar í hverri búð. Ef einhver greiðslumiðlunin ákveður að hækka úr, ja, ég veit ekki hvað á að segja, einu sinni var hver debetkortsfærsla á 9 kr. — segjum að hún ákveði að setja það upp í 900 kr. Ég ræð engu um það, Seðlabankinn ræður engu um það og það er ekki hægt að stoppa viðkomandi greiðsluaðila. Þess vegna tek ég eindregið undir breytingartillöguna sem minni hlutinn kemur fram með, um að hætta við þessa breytingu á 2. gr., vegna þess að hún er stórhættuleg fyrir neytendur í landinu. Ég bara skil ekki að meiri hlutinn hafi ekki áttað sig á því hvað þau eru í rauninni að opna á með þessu, opna á að það sé bara hægt að rukka okkur um hvað sem er í færslugjöld. Jafnvel þó að Seðlabankinn búi til einhverja innlenda greiðslumiðlun þá verður hún ekki til á morgun, ekki hinn og ekki heldur hinn. Nei, það eru örugglega einhver ár þangað til að hún verður komin upp og þangað til, vegna þess að þessi lög ganga í gildi, þá geta þær bara rukkað okkur eins og þeim sýnist. Ekki hrista hausinn, hv. framsögumaður. Það er nákvæmlega það sem þið eruð að opna á, áttið ykkur á því.