Seðlabanki Íslands.
Frú forseti. Ég tek undir með hv. þm. Gísla Rafni Ólafssyni. Það er mjög áhugavert að skoða hverjir það eru sem veita umsagnir. Það er reyndar enginn aðili sem er að velta mikið fyrir sér þessum hluta sem varðar þjóðaröryggi. Það er miklu meira verið að tala um réttmæti þess að stíga inn á samkeppnismarkað annars vegar og hins vegar tala Neytendasamtökin og fleiri um neytendaverndina. Við Íslendingar í þessu litla einsleita samfélagi höfum nú kannski bitra upplifun af einokun þó að hún sé ekki á hendi ríkisins, við erum allvön því og kannski of vön því að þurfa að skipta við fyrirtæki sem eru einráð á markaði og gætu kallast svona einokunarkapítalistar, hvort sem það er í samgöngum eða bankaviðskiptum eða öðru. Auðvitað hlýtur það að vera hlutverk ríkisins að verja okkur fyrir slíku. Ég hlýt að taka undir með orðum 1. minni hluta sem leggst harðlega gegn þessum breytingum. Við erum orðin svo vön þessu að við borgum með mikilli gleði í rauninni eða a.m.k. án þess að leiða hugann að hlutum sem myndu láta hárin rísa á frændum okkar í álfunni. Ég held að það sé kominn tími til að bankarnir láti nú af þessari ofurkröfu sinni um hámarksarðsemi á kostnað okkar neytenda sem neyðumst í rauninni til þess að skipta við þá.