154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

Seðlabanki Íslands.

662. mál
[21:10]
Horfa

Lenya Rún Taha Karim (P):

Frú forseti. Um er að ræða frumvarp til laga um breytingu á lögum um Seðlabanka Íslands varðandi rekstraröryggi greiðslumiðlunar. Ég get svo sem alveg tekið að miklu leyti undir þau sjónarmið sem hafa komið fram frá hv. framsögumanni þessa máls inni í efnahags- og viðskiptanefnd og síðan frá 1. minni hluta efnahags- og viðskiptanefndar, varðandi t.d. þjóðaröryggi. Það er vissulega mjög mikilvægt að íslenski löggjafinn tryggi þjóðaröryggi, sérstaklega á tímum eins og þessum þar sem við erum að stefna í, hvernig má orða þetta pent, meiri ófrið en við höfum verið vön, síðustu áratugi alla vega, t.d. með tilkomu aukinna netárása sem við höfum séð í fréttum undanfarið. Hins vegar eru nokkur atriði við þetta frumvarp sem mig langaði að velta fram, enda hef ég efasemdir um ákveðin atriði hvað þetta frumvarp varðar og um þessar lagabreytingar.

Til að byrja með langaði mig að tala um fákeppnismarkaðinn sem er á mörkuðum tengdum greiðslumiðlun. Þegar Seðlabanka Íslands eru færðar þessar inngripsheimildir sem þessar breytingar kveða á um er auðvitað mikilvægt að með þessum inngripsheimildum á líka að fylgja fjármagn og efling slíkra stofnana. Ég tók þetta fram í fyrri ræðu minni í kvöld í öðru máli en það virðist svo sem vera að það sé verið að fjársvelta eftirlitsstofnanir. Það virðist kannski ekkert endilega vera málið hvað varðar þetta frumvarp en það á að veita Seðlabanka Íslands víðtækari inngripsheimildir heldur en hann hefur nú þegar á greiðslumiðlunarmörkuðum. Ég renndi náttúrlega yfir þetta, ég er ekki búin að vera inni á þingi lengi, skoðaði málið og mér fannst það skjóta svolítið skökku við að þessar inngripsheimildir sem á að færa Seðlabanka Íslands hafi ekki verið skoðaðar nánar með tilliti til gildissviðs þessara inngripsheimilda. Vissulega skýrir Seðlabankinn í umsögn sinni við þetta mál, sem hann skilaði inn í mars, ég er ekki alveg viss, nánar hvernig þau sjái fyrir sér að hlutverk þeirra muni verða í kjölfar lögfestingar þessara laga sem eru lögð til. Aftur á móti verður hæstv. forsætisráðherra, sem leggur þetta fram, að hafa í huga að umsögn Seðlabanka Íslands hefur ekkert réttarheimildarlegt gildi þegar kemur að rökstuðningi. Ef það skyldi reyna á árekstur eða mörk þessara nýmæla og gildissvið þessara inngripsheimilda þá væri nú varla hægt að vísa til þess að stofnunin sem hlýtur þessar inngripsheimildir með þessum lagabreytingum hafi skilað inn umsögn og útskýrt nánar hvað felist í þessum inngripsheimildum í framkvæmd.

Nú hef ég ekki farið leynt með það að ég er mikill EES-sinni og ég sé það alveg skýrt að við höfum ákveðnum þjóðréttarlegum skuldbindingum að gegna hvað varðar EES-samninginn og við sætum að sjálfsögðu eftirliti frá eftirlitsstofnun EFTA. Ég velti því fyrir mér hvort þessi nýmæli feli í sér einhvers konar ríkisaðstoð, einhverja aðstoð til opinberra stofnana til að gegna einhverju hlutverki. Umsagnaraðilar hafa vissulega bent á þetta meira að segja líka, sem ég tek svo sem alveg undir. Ég held að það þurfi að skoða þetta mun betur. Síðan velti ég fyrir mér stöðu þessara nýmæla gagnvart núverandi lögum sem gilda um samkeppnismarkað, enda er markaðurinn sem greiðslumiðlun fer fram á virkur samkeppnismarkaður þótt þar inni ríki ákveðin fákeppni.

En ég er bara að velta því fyrir mér, ef það skyldi reyna á árekstur þessara inngripsheimilda og það skyldi koma upp vafamál um hvaða lögum eigi að beita þá tel ég það mjög mikilvægt að löggjafinn gæti þess að það komi skýrt fram í nefndaráliti alla vega eða í framsöguræðu í 3. umræðu, eða ég veit ekki alveg, ég veit ekki alveg hvar það væri æskilegast en bara að löggjafinn taki skýrt fram að þessi ákvæði og inngripsheimild Seðlabankans víki ekki almennum ákvæðum samkeppnislaga til hliðar ef það skyldi koma til réttarágreinings. Bara svona til að nefna dæmi um einstök lagaákvæði sem gætu komið upp: Það gæti komið vafi upp um hvort það gildi, hvort markaðsaðilar á greiðslumiðlunarmarkaði eigi að fara eftir — bara svona til að nefna mjög vítt dæmi þá er það auðvitað 10. gr. samkeppnislaga um bann við ólögmætu samráði og ef opinberir aðilar skyldu ákveða að hefja rekstur í samkeppni við einkaaðila á greiðslumiðlunarmarkaði þá er mikilvægt að ákvæði samkeppnislaga skyldu gilda um slíka starfsemi. Bara til að nefna dæmi þá eru það ákvæðin í 11., 14. og 16. gr., en af fyrirliggjandi frumvarpstexta að dæma þá sé ég ekki að það sé gert ráð fyrir því að einhver önnur lög gildi heldur en samkeppnislögin sjálf. En ég vil bara koma því skýrt á framfæri að ég tel að það mætti vera skýrara hjá löggjafanum.

Síðan velti ég líka fyrir mér hvort þessar heimildir sem Seðlabankinn hefur við að móta reglur um framkvæmd þessarar reglu feli í sér einhvers konar hindranir gagnvart innkomu nýrra markaðsaðila á þennan fákeppnismarkað sem ríkir hérlendis í greiðslumiðlun. Það þarf auðvitað að tryggja það og ég velti fyrir mér hvort eitthvert mat hafi farið fram á því hvort framkvæmd þessara nýmæla og mótun þessara reglna sem Seðlabankanum gefst heimild til þess að móta hafi einhver áhrif á innkomu nýrra aðila, hvort það sé verið að þrengja að markaðnum, hvort það sé hægt að túlka lögin á einhvern hátt þar sem það er verið að mögulega þrengja að einhverjum aðgangsskilyrðum sem vernda núverandi markaðsaðila sem starfa á þessum markaði.

Hvað varðar málið í heild sinni er þetta vissulega til bóta. Ég tel að vilji löggjafans í þessu máli sé góður og þessir hvatar sem standa að baki gerð þessa frumvarps séu auðvitað gerðir af heilum hug og góðum hug. Ég tel að þjóðaröryggi sé rosalega mikilvægt mál, sér í lagi þegar við stöndum á þessum óbeinu ófriðartímum þar sem er verið að gera árás á mikilvæga innviði ákveðinna ríkja. Hins vegar snýst þetta líka um að gera þetta vel og rétt þar sem tilgangurinn helgar ekki meðalið. Það gengur ekki að setja einhvers konar lög og bera fyrir sig að hafa hagsmuni þjóðarinnar og þjóðaröryggis að leiðarljósi en þessir hagsmunir nái einungis fram að ganga ef það er gengið á núverandi lagaumgjörð samkeppnismarkaða sem hafa verið mörg ár í mótun hérlendis. Samt sem áður eru flestir samkeppnismarkaðir á Íslandi — það ríkir mikil fákeppni í svona litlu landi eins og á Íslandi og því þarf að gæta alls hófs við beitingu inngripsheimilda á slíkum samkeppnismörkuðum. Ég held að það sé rosalega mikilvægt að við hér sem sitjum á Alþingi Íslendinga gætum þess að það sé ekki verið að hrófla við þessum samkeppnismarkaði sem er á ýmsum viðskiptamörkuðum, ef maður má kalla það það, sem hafa verið í mótun síðan árið 1994, myndi ég halda. Þannig að þetta er auðvitað bara enn þá í mótun.

Hins vegar langar mig líka að koma aðeins inn á greinargerðina en þar stendur, með leyfi forseta, í 1. kafla:

„Jafnframt felast í frumvarpinu breytingar á heimildum Seðlabankans til beitingar þvingunarúrræða til samræmis við heimildir Seðlabankans í öðrum lögum.“

Þetta er nú eitthvað sem hefur líka komið fram í umsögnum hagsmunaaðila sem hafa sent inn að í þessu felist óskýr inngripsheimild. Ég vil auðvitað bara að það sé gætt að því og gerð í rauninni úttekt á því. Ef ég man rétt þá hefur hv. þm. Gísli Rafn Ólafsson vísað þessu máli aftur til nefndar en ég er svona að velta því fyrir mér hvort nefndin hafi tíma til að gera úttekt á því hvort þessa inngripsheimild sé hægt að túlka víðar en gert er ráð fyrir í frumvarpinu sjálfu. Af reynslunni þá hefur það sýnt sig að ef það er vilji til staðar til að beita einhverri svona rúmri túlkun í framkvæmd einhvers konar laga sem kveða á um takmörkun réttinda einhvers lögverndaðs andlags þá er það svo sem alveg hægt, það er alveg hægt að rökstyðja það. Ég er bara að reyna að sjá fyrir mér hvort það sé rými til að slíkt sé gert.

Hins vegar langaði mig líka aðeins að koma inn á innleiðingu PSD2, „Revised Payment Service Directive“, með leyfi forseta. Mér finnst svolítið áhugavert að í þessu frumvarpi og í greinargerð þessa frumvarps er oft á tíðum vísað í PSD2. Setning þessara laga er í samræmi við þær kröfur sem PSD2 gerir.

Virðulegi forseti. Nú er ég komin á heimavöll. Nú er ég byrjuð að tala um EES-tilskipun þannig að ég ætla aðeins að fara út í það. Í þessu frumvarpi og nánar tiltekið í greinargerðinni — ég er ekki einu sinni búin að „control find-a“ það inni á Alþingissíðunni en þar er margoft vísað í PSD2, þetta er gert til að koma til móts við kröfur PSD2, en hins vegar erum við ekki að innleiða PSD2. Því velti ég fyrir mér, hvers vegna viljum við ganga langt, og mögulega lengra en PSD2 gerir ráð fyrir, til að koma til móts við þær reglur sem PSD2-tilskipunin setur en við viljum ekki innleiða tilskipunina sjálfa? PSD2 er náttúrlega EES-tæk tilskipun, hún varðar innri markaðinn. Hún varðar m.a. greiðslumiðlun. Ég er bara svona að velta því fyrir mér hvernig hæstv. ríkisstjórn sér fyrir sér að gera þetta til frambúðar. Heldur hæstv. ríkisstjórn að við getum bara, afsakið slettuna, virðulegi forseti, „cherrypickað“, afsakið forseti, þær tilskipanir sem við innleiðum og þær tilskipanir sem við innleiðum ekki þrátt fyrir að þær séu EES-tækar? Ég er aðeins að velta því fyrir mér.

Nú liggja fyrir, virðulegi forseti, drög sem framkvæmdastjórn Evrópusambandsins kynnti að mig minnir fyrr á þessu ári. Það eru drög að tillögu framkvæmdastjórnarinnar að PSD3. Þegar PSD3 tekur gildi, væntanlega kannski síðar á þessu ári eða snemma á næsta ári, þá er hún EES-tæk. Þetta varðar auðvitað málefnasvið innri markaðarins og þá þurfum við líka að innleiða hana. PSD2 er kannski ein af þessum gerðum sem við fengum sekt vegna og ESA höfðaði hópmál, samningsbrotamál. Þetta voru, held ég, 26 eða 22 mál í einu, samningsbrotamál sem þau höfðuðu á hendur Íslandi fyrir að innleiða ekki hvað, tugi gerða á sviði fjármálamarkaðar. Ég hef tekið eftir þessu gegnumgangandi þema. Við erum svolítið treg við að innleiða á réttum tíma og reynum aðeins að lauma okkur hjá því að innleiða gerðir sem tengjast fjármálamörkuðum, neytendavernd, umhverfisvernd líka, af því að umhverfisvernd fellur undir gildissvið EES-samningsins, og það eru bara alls kyns gerðir sem við erum ekki enn þá búin að innleiða og innleiðum stundum svona að hluta til og innleiðum þær ekki einu sinni rétt. Ég get tekið mál sem er meira að segja á dagskrá í dag, geymslu koldíoxíðs. Þetta var lagt fram í fyrra og er lagt fram aftur núna og það er enn þá ágreiningur um það í hvaða lög þessi tilskipun — þetta er sem sagt CCS-tilskipunin sem þessi lög eiga að vera innleiða — á að vera innleidd. Það er búið að biðja um álit frá ESA og búið að biðja um leiðbeiningar og alls konar og mér sýnist bara það sama vera að gerast með þetta. Það er t.d. svona sem þessi gullhúðun byrjar sem við erum alltaf að tala um, eða það er verið að tala um blekhúðun núna, held ég, ég man ekki alveg hvernig orðalagið er, það er svolítið langt síðan ég fylgdist með þeirri umræðu.

Til þess að enda á jákvæðum nótum þá langar mig bara að taka fram að ég styð markmið þessa frumvarps. Ég styð það að styrkja viðnámsþrótt, öryggi og virkni greiðslumiðlunar svo lengi sem það er ekki gert á kostnað samkeppni sem er nú þegar til staðar og að þess sé gætt að þessi inngripsheimild sé ekki of óskýr af því að ég tel að það sé rosalega mikilvægt að við sem hér sitjum — við erum auðvitað ekki sérfræðingar í öllum málum — hlustum á þau sem starfa á þessum markaði og þau sem hafa sérþekkingu á þessum markaði. Þetta er eitthvað sem ég kom auga á bara með orðalagi 2. gr., sem á að koma á eftir 17. gr. laganna. Það er eitthvað sem ég tók eftir og sá síðan að var einnig bent á í umsögnum við þetta mál. Það liggur eiginlega bara ekki skýrt fyrir upp að hvaða marki Seðlabankinn má grípa inn í á þessum markaði. Er eitthvert mat sem þarf að framkvæma áður en þessari inngripsheimild er beitt? Ég veit auðvitað að þetta er undantekningarákvæði og slík ákvæði ber ávallt að túlka þröngt, sérstaklega þegar kemur að takmörkum einhvers konar réttinda eins og ég er búin að fara yfir. Þessari löggjöf er ætlað að skapa jafnari samkeppnisgrundvöll og þetta snýr að öllum markaðsaðilum og þetta á að leiða til aukins framboðs og nýjunga í greiðsluþjónustu fyrir neytendur. En það felur m.a. í sér að það þurfi að tryggja opið aðgengi að greiðslureikningum sem skapar auðvitað líka tækifæri fyrir nýsköpun á sviði greiðslulausna. Þess vegna skýtur það skökku við að með þessu frumvarpi felst einnig þessi óskýra og opna heimild til að koma á fót innviðum, sem er í raun einhvers konar inngrip á samkeppnismarkaði.

(Forseti (LínS): Forseti vill ítreka að þingmálið er íslenska.)