Seðlabanki Íslands.
Frú forseti. Mig langar að þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og mjög góða og gilda spurningu. Þetta er sjónarmið sem ég náði reyndar ekki að koma að í fyrstu ræðu minni í kvöld en mun mögulega koma því að í seinni ræðu minni.
Til að byrja með vil ég taka undir með hv. þingmanni þegar hún nefnir vinnubrögð þessarar ríkisstjórnar. Við sjáum þetta í alls konar málum og við sjáum það líka á þessum þinglokum þegar verið er að henda fullt af ókláruðum málum út sem hafa í raun gott markmið. Þetta er eitt af þessum málum, markmiðið er gott. Þetta var ekki lagt fram að frumkvæði þessarar ríkisstjórnar heldur að frumkvæði einhvers sem starfar í þágu þjóðarinnar á þessum markaði og hefur eftirlit á þeim fjármálamarkaði sem greiðslumiðlun er — snýst bara um framkvæmdina og uppsetninguna; hún er bara óvönduð, því miður.
Ég tek síðan heils hugar undir það með hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur að þessi ríkisstjórn er ekkert að gæta að hagsmunum neytenda. Við sáum það t.d. í nýlegum dómum EFTA-dómstólsins sem voru kveðnir upp í síðasta mánuði, minnir mig, varðandi neytendalán hjá bönkum; að það væri bara ekkert í samræmi við ýmsar EES-tilskipanir sem við erum skyldug til að fara eftir, erum skuldbundin að þjóðarétti til að fara eftir. Þetta er nákvæmlega sama málið sem við sjáum hér. Þetta er kostnaður sem meiri hlutinn leggur til í breytingartillögu sinni að falla frá í raun, eins og hv. þingmaður talaði um, að það verði fallið frá þeirri gjaldheimild (ÞKG: Gjaldheimild.) og þetta muni endanlega bitna á neytendum. Við sjáum það sama með veiðigjöldin. Við sjáum það sama með þessar vanfjármögnuðu skattalækkanir. (Forseti hringir.) Þetta bitnar alltaf á almenningi og neytendum.