Seðlabanki Íslands.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir svarið og þetta er nákvæmlega það sem Neytendasamtökin hafa verið að benda á í sínum umsögnum, bæði um þetta frumvarp og önnur, að það sé algjört hagsmunamál fyrir neytendur að efla og auka samkeppni á markaði. Það er því miður lenska hjá þessari ríkisstjórn að hlusta lítið á Neytendasamtökin en þess þá heldur skiptir máli að þeirra rödd fái að heyrast hér í þingsal, hver þeirra skilaboð eru. Þau eru m.a. að benda á að huga þyrfti sérstaklega að hagkvæmni innlendrar, óháðrar greiðslumiðlunar og sérstaklega líka neytendaverndinni við útfærslu á henni.
En gott og vel, þetta er ákveðið skref og ég held að þetta sé, af því að þjóðaröryggi er mér mjög hugleikið, jákvætt skref hvað það varðar en þetta er enn frekar óskýrt. Við höfum á vettvangi Norðurlandaráðs, 27 milljóna manna markaði, verið að ræða það hjá norrænu ráðherranefndinni að það verði sameiginlegt norrænt greiðslukerfi. Ég held að það sé fyrirtakshugmynd. En það dregur enn og aftur fram hvað það er erfitt fyrir okkur að byggja upp samkeppnishæfan 400.000 manna markað. Við getum þetta ekki ein. Það eru svo miklir hagsmunir fólgnir í því fyrir hvert land sem telst til smáríkja eða minni þjóða að vera í samstarfi við aðrar þjóðir, erlendar þjóðir, til að reyna að ná fram miklum hagsmunum og ég sé að þetta er m.a. eitt af því sem við gætum náð betur fram með samstarfi hjá Norðurlöndunum.
Mig langar að spyrja hv. þingmann: Deilir hún þeim áhyggjum með mér varðandi gullhúðun, (Forseti hringir.) sem þessi ríkisstjórn er afspyrnufær í að standa fyrir, að gullhúða reglur, (Forseti hringir.) m.a. frá ESB, að það takmarki rétt neytenda frekar en að víkka hann?