154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

Seðlabanki Íslands.

662. mál
[21:38]
Horfa

Lenya Rún Taha Karim (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir spurninguna. Nú er ég komin á heimavöll, að tala um gullhúðun og EES-reglugerðir og tilskipanir. Ég hef alltaf reynt að halda því fram að gullhúðun þurfi ekki endilega að vera slæm. Gullhúðun, þegar hún víkkar rétt neytenda og veitir okkur meiri rétt frekar en að þrengja rétt okkar, er ekki slæm. Hins vegar deili ég þeim áhyggjum með hv. þingmanni, já, ég get tekið undir það að þessi gullhúðun ríkisstjórnarinnar er til þess fallin að takmarka rétt neytenda. Við sjáum þetta t.d. bara á þeim tilskipunum sem við erum búin að innleiða, ef við berum þær saman við þær tilskipanir sem við erum ekki búin að innleiða og það eru ýmsar tilskipanir sem kveða á um neytendavernd, sem kveða á um skaðabótaábyrgð vegna samkeppnismála, skaðabótatilskipunin — ég get farið endalaust yfir þetta.

Ég tel hins vegar að vandamálið sem þau tala um, sem þau kalla gullhúðun, blekhúðun, hvað sem þetta nú er, skapist hér inni í þessum þingsal út af því að meiri hlutinn, sem beitir meirihlutavaldi sínu til að koma alls konar lögum í gegn, skoðar ekki þessar EES-tilskipanir og reglugerðir sem við erum að innleiða í íslensk lög hér á Alþingi. Það er ekki verið að skoða samræmingu þessara innleiðinga við íslensk lög og það er ekki verið að skoða hvort verið sé að þrengja að réttindum borgara. Við sjáum þetta bara á þeim samningsbrotamálum sem ESA hefur tíma til að höfða gegn okkur. Ég skil þau bara rosalega vel. Þetta þykir mér líka afskaplega miður af því að, eins og hv. þingmaður kom inn á, og ég tek heils hugar undir, það er ótrúlega erfitt að skapa samkeppnishæfan markað í svona litlu landi. Það var m.a. hvati fyrir inngöngu okkar í EES-samstarfið (Forseti hringir.) og ég hafði nú vonast til að sjá það ganga enn lengra, (Forseti hringir.) enda er það tilgangurinn með innri markaði. En ég kem kannski inn á það í næstu ræðu.