Seðlabanki Íslands.
Frú forseti. Ég verð að viðurkenna að ég varð nú bara svolítið áttavillt í ræðu hv. þm. Lenyu Rúnar Taha Karim hér áðan. Nú er það þannig að PSD2-tilskipunin var innleidd með lögum um greiðsluþjónustu, ég held að það hafi verið árið 2021. Líkt og fram kom í framsögu minni er frumvarpið sem hér um ræðir, og þær reglur sem verið er að setja, lagt fram til þess að tryggja enn betur þau markmið sem þar koma fram. Þetta er því ekki í andstöðu við tilskipunina. Tilskipunin hefur verið innleidd en bent hefur verið á að til þess að Seðlabankinn geti aukið viðnámsþrótt og öryggi og innleitt innlenda greiðslumiðlun þurfi ítarlegri reglusetningarheimild og hún er fengin með frumvarpinu sem við ræðum hér. Þess vegna skiptir máli að frumvarpið verði samþykkt. Af því að ég heyrði ekki betur en að hv. þingmanni væri annt um þjóðaröryggi þá hlýtur það að skipta máli. En mér fannst mikilvægt að koma hér upp til þess að undirstrika að þetta er ekki bara í samræmi við tilskipunina heldur líka til þess að tryggja enn betur þau markmið sem þar koma fram. Það er mikilvægt að halda því til haga.