154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

Seðlabanki Íslands.

662. mál
[21:43]
Horfa

Lenya Rún Taha Karim (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Steinunni Þóru Árnadóttur fyrir andsvarið og fyrir að taka það fram að tilskipunin hefur verið innleidd. Það er vissulega rétt að hún hefur verið innleidd hér á landi en það þýðir ekki að hún hafi verið innleidd rétt. Eins og hv. þingmaður sagði í andsvari sínu hefur komið fram ábending eða athugasemd um að við höfum ekki innleitt hana rétt. Það var líka kjarninn í minni ræðu. Við erum svo gjörn á að innleiða ekki slíkar tilskipanir rétt, mögulega út af því að það varðar víðari rétt neytenda. Það að þessar tillögur meiri hlutans, um breytingu á lögum um Seðlabanka Íslands, að veita Seðlabanka Íslands þessa inngripsheimild, séu ekki í andstöðu við PSD2 þýðir ekki endilega heldur að þær séu í samræmi við PSD2. Það er nefnilega svolítið skemmtilegt að Eftirlitsstofnun EFTA hefur gert athugasemd við slíkar inngripsheimildir sem ná svo langt, eða gætu mögulega verið túlkaðar á þann veg, hjá innlendum fjármálaeftirlitsstofnunum í aðildarríkjum EFTA, og það er í máli EFTA-dómstólsins 13/23. Ekki var tekið heils hugar undir þau sjónarmið en það var nákvæmlega það sem Eftirlitsstofnun EFTA var að gera athugasemd við, þ.e. túlkunina, möguleikann á að víkka út gildissvið á ákvæðinu sem veitir þessu innlenda fjármálaeftirliti þá inngripsheimild í þágu þjóðaröryggis og í þágu bættra innviða og slíkt. Það sem ég var aðallega að reyna að gera, og ég held ég hafi alveg náð að koma því á framfæri í minni ræðu, var að brýna fyrir hv. þingmanni og meiri hluta þessarar nefndar að gæta þess(Forseti hringir.) að gildissviðið á þessu ákvæði verði ekki túlkað víðar en nefndin gerir ráð fyrir.