Seðlabanki Íslands.
Frú forseti. Sem betur fer hefur Alþingi Íslendinga verið að innleiða mörg mikilvæg mál sem m.a. snúa að fjármálamörkuðum. Þar höfum við oft gert aðlaganir sem snúa að því að hér er lítill markaður. Auðvitað þurfum við sem löggjafi alltaf að fara yfir málin þegar þau eru innleidd til þess að þau nái markmiðum sínum hér á Íslandi. Í þessu máli erum við ekki bara að setja í lög ákvæði sem skipta gríðarlega miklu fyrir þjóðaröryggi okkar, þar sem verið er að skýra það nákvæmlega út hvað Seðlabankanum er heimilt að gera, heldur ekki síður að leggja þá skyldu á lánastofnanir hér á landi að taka þátt í að koma á innlendri greiðslumiðlun.
Ég átta mig eiginlega ekki á því hvort hv. þingmaður er að reyna að drepa málinu á dreif með því að tala um að þetta standist ekki samninginn um Evrópska efnahagssvæðið eða hvað. En líkt og sjá má í greinargerð með frumvarpinu eru öll lönd í kringum okkur, raunar víða um heim, að huga að þjóðaröryggi sínu og tryggja að lagaumhverfið sé þannig að hægt sé að setja reglur um rekstraröryggi til þess að viðskipti í löndunum geti fúnkerað eins og við ætlumst til að þau geri. Og það er nákvæmlega það sem við erum að gera hér.