Seðlabanki Íslands.
Frú forseti. Það er rétt hjá hv. þingmanni að við á Íslandi höfum þegar innleitt fjöldamargar gerðir sem snúa að fjármálamörkuðum, enda sagði ég aldrei í ræðu minni að við hefðum aldrei innleitt slíkar gerðir. Við höfum hins vegar innleitt slíkar gerðir rangt. Við höfum tafist við innleiðingu þessara gerða sem hefur leitt til fjölda samningsbrotamála gegn Íslandi. Við höfum innleitt þær vitlaust. Við höfum verið að takmarka túlkun þessara gerða þannig að þrengt er að réttindum neytenda. Ég get talið upp mál hvað það varðar enda orðin svolítið sérfróð í EES-rétti. Ég hef aldrei sagt að Ísland hafi aldrei innleitt slíkar gerðir enda myndi ég aldrei halda slíkum staðhæfingum fram. Hvað varðar þjóðaröryggi og önnur lönd í kringum okkur — þetta er samningsbrotamál. Mál nr. 13/23 snerist einmitt um innleiðingu eða útfærslu Noregs á þessari innleiðingu á PSD2, að gildissvið þess væri nú bara frekar vítt. Ég hef ekki sagt að þetta frumvarp til laga um breytingu á lögum um Seðlabanka Íslands sé í andstöðu við EES-samninginn. Það tók ég hvergi fram í ræðu minni og ekki heldur í fyrri andsvörum mínum, höfum það alveg á hreinu. Hvað varðar orð hv. þingmanns sem hún tók skýrt fram — um að í þessu felist að Seðlabankinn fái heimild til að skylda lánastofnanir hér á landi til að taka þátt — þá styð ég það að byggðir séu upp hvatar til að taka þátt í að styrkja þennan markað. En það tíðkast ekki á venjulegum samkeppnismörkuðum að skylda markaðsaðila til að gera eitthvað á þessum markaði, (Forseti hringir.) enda kom það alveg skýrt fram í umsögnum nokkurra aðila sem eru sérfróðir í þessum málum. Ég spyr bara: Telur hv. þingmaður það vera eðlilega skyldu til að setja á markaðsaðila? (SÞÁ: Já.)