Seðlabanki Íslands.
Virðulegi forseti. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Seðlabanka Íslands, rekstraröryggi greiðslumiðlunar, er mikilvæg löggjöf. Þetta er mikilvæg löggjöf fyrir samfélagið vegna þess að við erum að greiða gríðarlega háar fjárhæðir, tugi milljarða króna úr landi vegna þess að við höfum ekki sjálf greiðslumiðlunina okkar. Það er samþjöppun varðandi greiðslur en 90% greiðslna eru inntar af hendi með greiðslukortum sem háðar eru erlendum innviðum og aðilum.
Það sem er svo sorglegt með þetta allt saman þegar maður les nefndarálitið er að þau virðast ekki skilja um hvað þetta mál snýst. Þetta snýst um það að greiðslumiðlun í dag og í framtíðinni og vonandi einhvern tímann á Íslandi, vonandi að þetta komi til Íslands, við skulum vona að það takist, fari að nota nýja tækni. PSD1 og PSD2 ganga út á það að gera greiðslumiðlun óháða bönkunum. Það er það sem er verið að reyna að gera, að það geti komið inn ný greiðslumiðlun. Í framtíðinni þegar við förum í Bónus þá eigum við að geta greitt með því að skanna strikakóða á símanum okkar eða QR-kóða svokallaðan sem við skönnum þá við greiðslu á kassanum. Við skönnum okkar strikakóða og greiðum með því fyrir vörur sem við kaupum í Bónus eða Hagkaup eða í hvaða verslun sem er. Þar með þurfum við ekki að nota kreditkortafyrirtæki, þurfum ekki greiðslukort. Það er vegna þess að það er komin þannig tækni að það er hægt að útbúa öpp sem tengja bankareikning minn, bankareikning viðskiptavinarins við bankareikning verslunarinnar, söluaðilans, og þá getur þetta app boðið upp á greiðslumiðlun með því að segja: Kæri viðskiptavinur, ef þú tengist þessu appi hérna, gefur appinu aðgang að bankareikningi þínum, þá getur þú farið út í búð og notað þetta app til að borga fyrir vöru.
Og hvað er grundvallaratriði í því? Jú, grundvallaratriði í þessu er það að bankarnir gefi þessum fyrirtækjum sem búa til þessi öpp, búa til þessa greiðslumiðlun, aðgang að bankareikningum. Það er grundvallaratriði, algjört grundvallaratriði vegna þess að þessi fyrirtæki, óháðu fyrirtæki sem eiga að geta komist inn á þennan markað, eru háð því að bankarnir geti gefið þriðja aðila aðgang að bankareikningum. Ef það tekst ekki þá verðum við ekkert með það þannig að nýsköpunarfyrirtæki komist inn á þennan markað. Svo einfalt er það. Og hvernig geta bankarnir komið í veg fyrir það að einstaklingur sem á bankareikning í banka á Íslandi veiti appinu, greiðslumiðlunarfyrirtækinu, aðgang að reikningunum? Jú, banki getur sett mjög hátt gjald á það að viðskiptavinurinn gefi upplýsingar um bankareikning sinn. Bankinn getur sagt: Fyrir hverja greiðslu þar sem appið er notað verður það hátt gjald að það borgar sig ekki fyrir viðskiptavini eða verslunina. Það er grundvallaratriði í þessu.
Með því að einhverjum skuli detta í hug að vera að fella úr gildi ákvæði þannig að Seðlabankanum sé núna ekki heimilt að setja mörk á gjaldtöku af hálfu greiðsluþjónustuveitenda, er einfaldlega verið að segja: Já, bankar, þið megið setja á hvaða gjald sem er fyrir að veita aðgang að bankareikningum ykkar. Hvað þýðir það? Jú, það þýðir að ef bankarnir eiga þessi greiðslumiðlunarfyrirtæki þá geta þeir haft gjaldið eins hátt og þeir vilja vegna þess að það skiptir engu máli fyrir bankann að fyrirtæki sem bankinn á greiði bankanum háa fjárhæð, ekki nokkru einasta máli. Það er verið að færa peningana úr vinstri hendinni yfir til hægri. Það er sami aðilinn sem á greiðslumiðlunarfyrirtækið og bankann og þá er hægt að hækka gjaldið upp úr öllu valdi. Það skiptir engu máli fyrir bankann. Það er bara þúsundkall sem fer úr hægri hendi í þá vinstri, frá greiðslumiðlunarfyrirtæki bankans til bankans. En ef sjálfstæður einstaklingur á greiðslumiðlunarfyrirtækið þá skiptir það öllu máli vegna þess að það verður svo dýrt fyrir greiðslumiðlunarfyrirtækið og þjónustuveitandann, búðina, að borga þennan pening til bankans. Þess vegna er svo mikið grundvallaratriði að Seðlabanki Íslands geti sett mörk á gjaldtöku af hálfu greiðsluþjónustuveitanda. Það er grundvallaratriði í þessu öllu. Það að Seðlabanka Íslands skyldi síðan detta í hug og Alþingi Íslendinga, meiri hlutanum í efnahags- og viðskiptanefnd, að segja: Nei, heyrðu, þetta er vegna þess að það er samkeppni í málunum og við ætlum ekki að vera með inngrip Seðlabankans á samkeppnismarkaði. (Gripið fram í: Nú?) Nei, það er alveg bannað. Það er sérstök stofnun í landinu sem á bara að sjá um það, fjársvelt stofnun sem getur ekki sinnt hlutverki sínu. Það á enginn annar að fjalla um samkeppnismarkaðinn eða bera ábyrgð á því að það sé samkeppnismarkaður á Íslandi.
Við skulum fara yfir hvað greiðslumiðlunartilskipun nr. 2 segir um það. Það er búið að innleiða þetta í lög um greiðsluþjónustu, svo það liggi algerlega fyrir. Í innganginum að PSD2 er fjallað um samkeppni aftur og aftur. Það er fjallað um t.d. það að tryggja sanngjarna samkeppni á þeim markaði og koma í veg fyrir að núverandi þátttakendur á markaðnum verði fyrir óréttlætanlegri mismunun. Það kemur líka fram að í öllum tilvikum skal aðeins leyfa mismun á verðlagningu þegar hann ákvarðast af mismunandi kostnaði sem greiðsluþjónustuveitendur stofna til. Til að tryggja sanngjarna samkeppni milli greiðsluþjónustuveitenda ætti þátttakandi þó, í tilnefndu greiðslukerfi sem fellur undir skilyrðin í tilskipuninni að hafa aðgang að slíkri þjónustu á hlutlægan og hóflegan hátt án mismununar. Aftur: Slík greiðslukerfi geta starfað hvort sem er í beinni samkeppni við greiðslukerfi eða ekki. Til að örva samkeppni í lokuðu kerfi skal gera ákveðna hluti. Það er aftur og aftur fjallað um samkeppni.
Þetta er innleitt í lög um greiðsluþjónustu, sem hver hefur eftirlit með? Jú, Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands. Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur eftirlit með því og það stendur í 22. gr. laga um greiðsluþjónustu að Fjármálaeftirlitið hefur eftirlit með starfsemi greiðslustofnana. Fjármálaeftirlitið hefur heimild til að krefjast allra upplýsinga sem þörf krefur til að unnt sé að hafa eftirlit með því að lögum og reglum sé fylgt, o.s.frv.
Það er líka ákvæði í tilskipuninni sem er innleitt í lög um að það skuli tryggja að greiðslustofnanir hafi aðgang að greiðslureikningaþjónustu lánastofnana á hlutlægan hátt, án mismununar og hlutfallsbundið, til að gera greiðslustofnunum kleift að veita greiðsluþjónustu á óhindraðan og skilvirkan hátt. Þessi texti, PSD2, er innleiddur í 37. gr. laga um greiðsluþjónustu.
Við getum tekið 62. gr. í greiðsluþjónustutilskipun nr. 2. Þar segir:
„Greiðsluþjónustuveitandi skal ekki krefjast gjalds af notanda greiðsluþjónustu þegar hann uppfyllir upplýsingaskyldur sínar eða gerir leiðréttingarráðstafanir […] Notandi greiðsluþjónustu og greiðsluþjónustuveitandi skulu semja sín í milli um þessi gjöld og skulu þau vera viðeigandi og í samræmi við raunverulegan kostnað greiðsluþjónustuveitandans. Aðildarríki skulu krefjast þess að því er varðar greiðslur innan Sambandsins, ef greiðsluþjónustuveitendur bæði greiðanda og viðtakanda greiðslu, eða eini greiðsluþjónustuveitandi greiðslu, eru innan þess, að viðtakandi greiðslu greiði gjöldin sem greiðsluþjónustuveitandi hans leggur á og að greiðandinn greiði gjöldin sem greiðsluþjónustuveitandi hans leggur á. Greiðsluþjónustuveitandi skal ekki hindra viðtakanda greiðslu í að krefjast gjalds af greiðanda, bjóða honum afslátt …“
Þetta eru t.d. lög sem Seðlabanki Íslands á að framfylgja, hafa eftirlit með.
Svo tökum við 36. gr. tilskipunarinnar, hún er innleidd í lögin. Ákvæðið heitir Þátttaka í greiðsluþjónustu og þar segir nákvæmlega það sama:
„Reglur um þátttöku í greiðslukerfum skulu vera hlutlægar, án mismununar og hóflegar. Þær mega ekki hamla aðgangi meira en nauðsynlegt er til að verjast tiltekinni áhættu […] Í greiðslukerfum skulu ekki gerðar kröfur til greiðsluþjónustuveitenda …“
Þetta gengur allt út á samkeppni, allt saman, og ef Seðlabanki Íslands skilur ekki lög um greiðsluþjónustu og PSD2 þá veit ég ekki hvar við erum stödd í heiminum í dag. Svo einfalt er það. Seðlabanki Íslands á að biðja almenning og Alþingi Íslendinga afsökunar á því að vera að óska eftir því í umsögn að þessi heimild um að leggja mörk á gjaldtöku af hálfu greiðsluþjónustuveitenda sé ekki þeirra hlutverk. Það er alveg klárt mál að Seðlabanki Íslands skilur greinilega ekki greiðsluþjónustutilskipun Evrópusambandsins nr. 2. Þau skilja ekki þessar greinar tilskipunarinnar sem eru innleiddar í lög um greiðsluþjónustu; 36. gr., 37. gr, og 62. gr., það er fjallað um gjaldtöku þar. En nei, Seðlabankinn má ekki setja mörk á gjaldið, það er alveg bannað. En gaman.
Hvernig væri að ég myndi bara lesa innganginn um PSD2, greiðsluþjónustutilskipun nr. 2? Það stendur skýrum stöfum að þetta á að tryggja samkeppni, þetta á að tryggja það að nýsköpunarfyrirtæki, lítil fyrirtæki, geti búið til greiðsluöpp, geti búið til greiðslumiðlun og fengið aðgang að reikningum notendanna án þess að gjaldið sé of hátt. Það er tilgangurinn. Af því að það er þröskuldur fyrir þessi fyrirtæki og neytendur að gefa aðgang að reikningi sínum. Út á það gengur þetta allt saman, að við getum hlaðið niður appi, getum hlaðið niður einhverju tæki sem gefur aðgang að bankareikningi okkar svo við getum farið út í búð og látið skanna QR-kóðann eða strikamerkið og borgað fyrir mjólkina og okkar daglega brauð. Út á það gengur þetta allt saman. Þetta gengur út á tæknibyltingu, að hleypa að öðrum fyrirtækjum en bönkunum sem eru í algjörri sjálftöku á íslenskum markaði. Nei, nei, þá kemur umsögn: Nei, það má ekki vera inngrip Seðlabankans á samkeppnismarkaði.
Það er svo fyndið að þetta er allt fóðrað með því, eins og segir hérna, með leyfi forseta, að gjaldtökuheimildin megi ekki vera tvítekin, vegna þess að í setningunni í lokin á 2. gr. segir: „… gjald fyrir afnot af innviðum og mörk á gjaldtöku af hálfu greiðsluþjónustuveitenda.“ — Þessa setningu á að fella út vegna þess að gjald fyrir afnot á innviðum er í 43. gr. laga um Seðlabankann, gjaldtökuheimild, og það er algerlega bannað að endurtaka það aftur í 2. gr. frumvarpsins, sem er þá 17. gr. laga um Seðlabankann. Það myndi vera stórhættulegt þannig að við verðum að taka það út.
Málið er bara að það er verið að nota þetta sem tylliástæðu til þess að koma í veg fyrir það að Seðlabankinn hafi heimild til að setja mörk á gjaldtöku af hálfu greiðsluþjónustuveitenda. Það stendur í nefndarálitinu. Ég veit að setningin á eftir byrjar á því að samhliða því eigi að taka þetta út, vegna þess að það er svo hættulegt að Seðlabankinn skipti sér af samkeppnismarkaði, verði með inngrip. Meira að segja ef þú setur mörk á gjaldið, þeir geta sleppt því að nota það. En ef þeir myndu setja mörk á gjaldið þá er það ekkert inngrip á samkeppnismarkaði. Það er bara verið að segja að þetta teljum við hóflegt gjald, eins og segir í PSD2, eins og segir í lögum um greiðsluþjónustu. Svo einfalt er það.
Þetta er algerlega með ólíkindum. Ég satt að segja þegar ég var að skoða þetta fór að hugsa: Núna skil ég af hverju stýrivextir eru 9,25. Núna skil ég það. Jú, það á að kreista íslenskan almenning með háum stýrivöxtum. Það kom Nóbelsverðlaunahafi hérna um daginn, Joseph Stiglitz, sem lýsti þessu öllu fyrir okkur: Allt of háir stýrivextir hafa áhrif á verðlagið. Að sjálfsögðu. Það er svo einfalt mál og bankarnir græða eins og enginn sé morgundagurinn og fjármagnseigendur líka. Hvaða hagsmuni hefur Seðlabanki Íslands af því að hafa stýrivexti 9,25? Og hvaða hagsmuni hefur Seðlabanki Íslands af því að segja: Nei, við viljum ekki vera með inngrip á samkeppnismarkaði? Hvernig væri að þið mynduð lesa greiðslutilskipun Evrópusambandsins nr. 2? Lesið bara innganginn, lesið ákvæði laga um greiðsluþjónustu; 36. gr., 37. gr. og 62. gr., gjaldtaka, bein þýðing. Lesið innganginn, það er fjallað um samkeppni þar. Og Seðlabankinn á að hafa eftirlit með því að tilskipun PSD2, greiðsluþjónustutilskipun nr. 2, sé rétt innleidd.
Ekki láta plata ykkur, ekki gera það, þingmenn, ekki láta bjóða ykkur upp á þetta, ekki hlusta á einhverja spekinga uppi í Seðlabanka sem eru að fara með rangt mál. Ég er alltaf að rekast á það aftur og aftur, það er einhver sérfræðingur í ráðuneyti, einhver sérfræðingur einhvers staðar sem segir við okkur: Nei, heyrðu, þið verðið að lögleiða þetta núna. Þjóðlendulögin, það verður bara að gerast. Við verðum að gera það, það verður að samþykkja frumvarp um þjóðlendur núna, um óbyggðanefndar. Það verður að gerast núna í vor, vorið 2024, því að lögin eiga að taka gildi 1. janúar 2026. Það er eitt þing á milli meira að segja, en samt er verið að pressa á okkur af einhverjum spekingi uppi í ráðuneyti: Heyrðu, við verðum að lögleiða þetta núna, það er alveg algjört „möst“.
Ég skora á stjórnarmeirihlutann, meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar að afnema ekki þetta ákvæði um mörk, þessa heimild Seðlabankans að setja mörk á gjaldtöku af hálfu greiðsluþjónustuveitenda, vegna þess að þetta er algjörlega í samræmi við allt sem stendur í greiðsluþjónustutilskipun nr. 2 hjá Evrópusambandinu og líka í lögum um greiðsluþjónustu. Það á að leyfa það að nota nýju tæknina. Ný fyrirtæki eiga að geta komið inn á þennan markað óáreitt og við eigum sjálf að geta veitt aðgang að bankareikningum okkar án þess að bankarnir fari að rukka óhóflegt gjald fyrir það. Það á að tryggja að það sé samkeppni og það á að tryggja að bankarnir hirði ekki þennan markað. Það er tilgangurinn með þessu öllu saman, að það verði fjölbreytileiki í greiðslumiðlun. Það er tilgangurinn með þessu. Það á að gefa einkakraftinum, sköpunarkraftinum sem er í upplýsingabyltingunni aðgang að greiðslumiðlun í landinu. Þetta er markaður upp á tugi milljarða króna sem er núna samþjappaður, hann er 90% hjá greiðslukortafyrirtækjunum sem eru erlend og þau taka tugi milljarða úr landi.
Ekki gera það. Ég skora á meiri hlutann, framsögumann málsins að koma fyrir 3. umræðu og segja að þessi heimild eigi að vera inni. Við ættum nánast að setja sérstakt ákvæði um það að Seðlabankanum beri að setja mörk á gjaldtöku af hálfu greiðsluþjónustuveitenda. Það er rétt að gera. Það er skynsamlegt að gera. En ég er farinn að efast um það að nokkur greiðslumiðlunarfyrirtæki komist inn á markaðinn vegna þess að bankarnir ætla sér að gnæfa yfir þessu, þetta er stór markaður.
Málið er að það er ekki við færsluna sem hagnaðurinn verður heldur er það þannig að þegar þú notar þessi öpp, þegar þú notar þessa þjónustu þá er verið að bjóða upp á alls konar aðra þjónustu líka í leiðinni. Ef þú ætlar kannski að kaupa sjónvarp á afborgunum eða guð má vita hvað, þá má líka bjóða þér þjónustu þar, þegar þú ætlar að nota þessa þjónustu. Út á það gengur þetta. Við eigum að geta gefið öllum aðgang sem okkur lystir að bankareikningum okkar svo við getum borgað reikninga okkar og fyrir okkar daglega brauð með þeim hætti sem okkur sýnist. Það á ekki að setja mörk á það. Það á ekki að vera of hátt gjald á því þannig að við séum algerlega rígbundin við kortafyrirtækin eða heimabankana. Það á ekki að vera þannig.
Ég lít á þetta bara sem mistök í lagasetningu. Það er verið að vísa í 43. gr. laga um gjaldtökuheimild Seðlabankans — ég meina, hvað á maður að segja? Það skiptir engu máli þó að gjaldtökuheimildin sé á tveimur stöðum. Það mætti meira að segja túlka það þannig að núna væri ekki heimilt að setja á gjaldtöku vegna rekstraröryggis greiðslumiðlunar, af því að það er búið að fella niður heimildina. Það má alveg túlka það þannig.
En það breytir því ekki að ég ætla ekki að hafa þetta lengra. Ég tel að við eigum algerlega að sjá til þess að það verði opinn markaður og allir fái að njóta sín, að þeir sem vilja fari inn á þennan markað, leggi í þá fjárfestingu að búa til teinana fyrir greiðslumiðlun í landinu. Það er þannig sem við eigum að hafa þetta. Og Seðlabankanum ber skylda til að sjá til þess að það sé samkeppni á þessum markaði. Það stendur í innganginum að greiðslutilskipun Evrópusambandsins nr. 2, klárt mál, og það eru ákvæði þar undir sem ég fór yfir hér áðan.