154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

Seðlabanki Íslands.

662. mál
[22:09]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir innblásna ræðu. Það er mjög áhugavert að skoða dýnamíkina á milli tilgangs frumvarpsins og þeirra breytingartillagna sem eru lagðar til af nefndinni. Það er oft erfitt að sjá það þegar eitthvað er fjarlægt með texta sem kemur í staðinn fyrir annan texta. Þarna er bætt við „netöryggi“ og tekið burt „gjald fyrir afnot af innviðum og mörk á gjaldtöku af hálfu greiðsluþjónustuveitenda“. Það er þrennt sem er verið að breyta í reglugerðarheimildinni hjá meiri hlutanum. Ég átta mig ekki alveg á því hvaðan beiðnin kemur, hver rökin eru eiginlega fyrir þessu. Ég sé þau ekki. Ef þetta á að hjálpa til við samkeppni, neytendalega séð, þá skoðar maður öll dæmin sem er verið að taka frá Svíþjóð og Noregi og frá Brasilíu og ég veit ekki hvað, og þar er myndin sem er verið að teikna upp af nýrri tegund greiðslumiðlunar einhvern veginn allt önnur heldur en breytingartillaga meiri hlutans bendir til. Ég á dálítið erfitt með þetta því að það er góður tilgangur þarna á bak við í frumvarpinu. Maður sér að það er verið að elta ákveðna þróun í greiðslumiðlun sem hefur gerst víða víða um heim en hérna erum við föst í núverandi ástandi sem er ákveðið einokunarástand, klassískt íslenskt ástand. Seðlabankinn og í rauninni íslenska ríkið sem eigandi íslensku krónunnar gefa bara frjálst skotveiðileyfi einhvern veginn á notkun krónunnar (Forseti hringir.) með því að tiltaka ekki einhver hámörk á millifærslu króna á milli tveggja aðila.