Seðlabanki Íslands.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Þetta er eiginlega svolítið fyndið. Ef maður les breytingartillöguna við 2. gr. þá er það mjög áhugavert, með leyfi forseta:
„Á eftir 1. málsl. komi nýr málsliður, svohljóðandi:
Reglurnar geta tekið til innviða rafrænnar smágreiðslumiðlunar, innviða greiðslumiðlunar við útlönd og seðla og myntar.“
Innviðir greiðslumiðlunina vegna seðla og myntar, hverjir eru þeir? Er það ekki þegar ég borga með reiðufé og svo er peningurinn settur í poka og fluttur eitthvert annað eða verslunin tekur á móti seðlum og mynt? Mér líður eins og ég sé að lesa einhverja reglugerðarbreytingu frá 1950 eða eitthvað svoleiðis. Það eru ríki í heiminum sem vilja losna við seðla og mynt. Ég er algerlega ósammála því að ég tel seðla og mynt vera mikilvæga, en þið vitið það, allur þingheimur veit það og almenningur veit það að notkun á seðlum og myntum fer stórkostlega minnkandi. Ég segi ekki að hún sé algerlega horfin en hún er mjög lítil. En ég bara skil ekki þessa breytingu. Ég sá ekkert í nefndarálitinu þar sem var sérstaklega farið ofan í þetta nákvæmlega. Það er bara sagt í lokin að meiri hlutinn telji að fyrrgreindar breytingar leiði til þess að heimild til reglusetningar verði ítarlegri og samrýmist þar með betur markmiðunum sem frumvarpinu er ætlað að ná. Ég veit ekki til þess að þetta nái til greiðslumiðlunar vegna seðla og myntar, svo ég taki sem dæmi.
En varðandi 2. málslið, að í reglunum sé heimilt að mæla fyrir um nauðsynlegar ráðstafanir eins og fyrirkomulag innviða greiðslumiðlunar, netöryggi, tilhögun greiðslufyrirmæla, sannvottun, ábyrgð og uppgjör greiðslna o.s.frv., þá eru þetta bara praktískt atriði um það hvernig þessi framkvæmd á að vera.
Stórt atriði í greiðslumiðlun á netinu þar sem eru greiðsluþjónustuveitendur er persónuverndin, það að gefa aðgang, hver einstaklingurinn er og að hann sé sá sem hann segist vera o.s.frv. Það er mjög stórt atriði. En eins og ég segi: (Forseti hringir.) Ég einblíndi fyrst og fremst á 43. gr. og þetta með mörkin.