Seðlabanki Íslands.
Forseti. Já, það er þetta með mörkin sem er bara óútskýrt í rauninni. Af hverju er verið að fjarlægja þetta? Ég hefði talið nauðsyn á að rökstyðja það á einhvern greinargóðan hátt sem ég er ekki að ná, kannski er ég bara eitthvað lesblindur og finn þetta ekki. En það er svo merkilegt með þessi bankamál og þessi millifærslumál og svoleiðis að það eru til fullt af alls konar öppum sem hægt er að setja upp hjá sér og þau skoða bankaupplýsingarnar og ýmislegt svoleiðis til þess að gefa manni alls konar tillögur um það hvernig hægt er að versla betur og þess háttar. Og einmitt út af því að bankarnir hafa verið tregir til að veita þriðja aðila aðgang, náttúrlega með leyfi eiganda og með góðri og öruggri auðkennisþjónustu, þá hafa þessi fyrirtæki verið að nota skröpunaraðferðir. Það þýðir að þú sem notandi þarft að láta þriðja aðila fá notendanafn og lykilorð inn í heimabankann þinn (Forseti hringir.) til þess að þriðja fyrirtækið geti bara skrapað upplýsingarnar af vefsíðunni eftir að hafa skráð sig inn í heimabankann. Þetta þarf að laga.