154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

Seðlabanki Íslands.

662. mál
[22:15]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvarið. Vonandi fáum við skýringar á þessu varðandi seðla og mynt, það er mjög mikilvægt. Rafrænni smágreiðslumiðlun, eins og kemur fram í frumvarpinu, er skipt í tvo flokka; greiðslur með greiðslukortum sem fara um innviði erlendra kortasamsteypa og hins vegar greiðslur sem byggjast á millifærslum í netbanka, eins og við þekkjum öll, eða bankaappi sem fara um íslenska innviði lánastofnana og Seðlabankans hins vegar. Þú gefur aðgang með bankaappi t.d. og þú getur líka sett þetta inn í öpp hjá búðum. Bónus gæti t.d. verið með strikamerkingar sem þú tengir við bankareikninginn þinn. En þetta er góður punktur sem er komið inn á varðandi það að þegar þú borgar með appinu þá þarftu alltaf að fara inn í heimabankann og gefa heimild í heimabankanum. Þetta er tæknileg viðskiptahindrun. Þegar kúnninn kemur að kassanum til að borga þá þarf hann að fara að berjast við það að fara inn í heimabankann sinn og þá gefur hann appinu heimild inni í heimabankanum og þá loksins getur hann borgað. Þetta tekur svona 15–20 sekúndur kannski. Þetta leiðir til þess að kúnninn, viðskiptamennirnir, munu ekki nota appið, það er svo erfitt. (Forseti hringir.) Tæknin mun ekki þjóna hagkvæmni sinni. Og það er líka eitt af því sem bankarnir kannski vilja hindra, að þessi tækni (Forseti hringir.) fái að koma til landsins og við getum fengið sjálfstæð fyrirtæki á þessum markaði.