Seðlabanki Íslands.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir kraftmikla ræðu. Það að nota símann sinn til að borga — ég var nú í Afríku, í Kenýa, 2007 þar sem þeir eru búnir að nota símagreiðslukerfi síðan þá sem virkar ótrúlega vel. Það sem þeir gerðu var einfaldlega að þeir settu niður að gjaldmiðillinn væri 1 kr. eða 1 dollari eða eitthvað og það er jafn mikið og ein mínúta í inneign, í frelsi. Svo gastu fært frelsið þitt á milli. Þannig varð til peningagreiðslumiðlun sem var ekki undir neinum lögum. Það var eiginlega fyndið því að það er það sem hefur verið sagt að sé grunnurinn að því að fá góða greiðslumiðlun í Afríku, að það voru engir bankar að skipta sér af.
En mig langar að taka upp að hv. þingmaður notaði orðin mistök í lagasetningu áðan og ég tel að í þeirri breytingu sem verið er að gera í b-lið 2. gr. í nefndarálitinu sé verið að gera stórvægileg mistök í lagasetningu. Ég skil að hv. efnahags- og viðskiptanefnd hafi verið að reyna að koma til móts við inngrip á samkeppnismarkaði en að gera það með því að setja neytendur út á klakann, með því að það sé hægt að fara úr núverandi sirka 5–6 kr. á færslu, á hverja kortanotkun, yfir í það að geta rukkað hvað sem er, 500 kr., 600 kr. ef þau vilja — við getum ekkert gert vegna þess að nefndin endaði á því að gera lítil mistök við að afnema þetta hámark. Ég spyr hv. þingmann: Hvað getum við gert til að við séum ekki að gera svona mistök í lagasetningu?