Seðlabanki Íslands.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég þekki þetta með Kenýa. Þeir voru meira að segja að nota gömlu Nokia-símana, 5110-símana, til að greiða. Þetta er mjög útbreitt þarna og fyrir snjallsímana notuðu þeir meira að segja farsíma sem greiðslumiðlun, sem er mjög gott vegna þess að þeir voru þá ekki háðir bönkunum og greiðslumiðlunarkerfi sem var útsett fyrir spillingu.
Ég tel að verið sé að lauma þarna inn lagabreytingu sem getur haft, getur haft segi ég, mikil áhrif, þ.e. að bankinn hafi ekki heimild til þess að setja mörk á gjaldtöku af hálfu greiðsluþjónustuveitenda — það er verið að gera það. Það er meira að segja verið að vitna til þess, í fyrri hluta setningarinnar sem lýtur að gjaldi fyrir afnot af innviðunum, að heimildin sé í 43. gr. líka og það má alls ekki hafa hana tvisvar. Stóra málið eru náttúrlega þessi mörk. Ef greiðslumiðlunarfyrirtæki, fyrirtæki sem er búið að hanna innviði til þess að sjá um greiðslumiðlun, getur ekki farið inn á þennan markað og bankarnir ætla að koma með eigið fyrirtæki sem borgar þá sjálfu sér þetta háa gjald, ef fyrirtækið segir: Það er samkeppnisvandamál hérna — jú, þá þarf litla fyrirtækið, greiðslumiðlunarnýsköpunarfyrirtækið, að stofna til ágreinings og ófriðar við bankana. Það þarf að kæra til Samkeppnisstofnunar eða kæra til ESA brot á samkeppnisreglum, brot á tilskipun um greiðslumiðlun nr. 2. Það vill ekkert fyrirtæki gera á fjármálamarkaði. Það vill enginn stofna til ágreinings við þessar stóru stofnanir samfélagsins sem öllu ráða, þessa þrjá banka til dæmis. Það þorir því enginn. Það er stóra málið. En Seðlabanki Íslands getur reddað þessu öllu saman fyrir litlu karlana og litlu konurnar með því að setja reglur um mörk á gjaldtöku af hálfu greiðsluþjónustuveitenda. Þeir hafa myndugleikann og eru það öflugir að geta sett þessi mörk. Fyrirtækin hin myndu aldrei þora það, bisnessinn væri eiginilega búinn með því að fara í ágreining við bankana um að verið sé að rukka allt of mikið. (Forseti hringir.) Það er stóra málið. En svo kemur Seðlabankinn og segir: Nei, heyrðu, við viljum ekki vera með inngrip á samkeppnismarkaði. Ég segi bara: Lesið innganginn að PSD2.