154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

Seðlabanki Íslands.

662. mál
[22:22]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Við höfum kannski fests aðeins of mikið í neytendum og gleymum söluaðilunum. Hver er nógu gamall hér inni, hv. þingmenn, til að muna það þegar Kentucky Fried Chicken í Hafnarfirði tók ekki við greiðslukortum vegna þess að þjónustugjöldin voru of há? (Gripið fram í.) Já, þau hafa nú ekkert mikið lækkað síðan það var upphaflega. Maður þurfti að fara í hraðbanka áður en maður fór á Kentucky vegna þess að þeir tóku ekki við kortum. Við erum ekki bara að opna á það að hægt sé að hækka úr 5–6 kr. í 500–600 kr. hverja færslu sem við borgum, heldur erum við líka að opna á það að ef færsluaðilinn vill rukka fyrirtæki 10, 15 eða 20% fyrir hverja færslu, bara af því að þeir eru kannski ekki mjög ánægðir með þann viðskiptavin eða eitthvað, þá er ekkert verið að stoppa það. Ég held að við verðum að fara að grafa upp eitthvað af þessum gömlu seðlum sem búið er að brenna vegna þess að við munum ekki geta verslað neins staðar.