Seðlabanki Íslands.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvarið. Já, grafa upp gömlu seðlana — ég sá nú á samskiptamiðlum, Facebook, mynd af 2.000 kallinum með Kjarval þar sem var spurt: Man einhver eftir þessum? Hann er enn þá í gildi þessi seðill.
Varðandi þetta með kreditkortin þá er meiri kreditkortanotkun hér en í öðrum ríkjum en debetkortanotkun vegna þess að samningurinn um kreditkortin var hagstæðari neytendum, ef ég man rétt. Svo komu debetkortin síðar og það voru óhagstæðari samningar. Það var alla vega þannig á þessum tíma, í gamla daga, ég man aðeins eftir þessu, og það er ástæðan fyrir því að við erum með minni debetkortanotkun eða greiðslukortanotkun heldur en kreditkortanotkun. Þess vegna skiptir rosalegu máli núna að við gerum þetta rétt, vegna þess að greiðslumiðlun í heiminum öllum er að breytast svo rosalega. Bankarnir úti í heimi voru alla vega þannig að þeir voru að fara á taugum yfir því að verða næsta Kodak, að þeir væru risar sem myndu bara deyja drottni sínum vegna þess að það voru komnir lánaklúbbar til Bandaríkjanna og það var hægt að gera þetta allt öðruvísi. Það er aðeins að gerast hérna, við sjáum það hjá Indó og fleiri fyrirtækjum, greiðslumiðlun og líka lánastarfsemi er að breytast. Við sáum það með Bitcoin. Það er alls konar tækni sem er að koma og þessum reglum, (Forseti hringir.) PSD1 og PSD2, er ætlað að koma þessari tækni til okkar svo við verðum ekki undir ofurvaldi bankanna. En það lítur út fyrir að kannski verðum við það áfram (Forseti hringir.) af því að þeir munu eiga þessi greiðslumiðlunarfyrirtæki. Þeir ætla sér að hirða alla kökuna.