154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

Seðlabanki Íslands.

662. mál
[22:25]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir aldeilis innblásna ræðu. Enn og aftur þá sýnir það sig hversu mikilvægt það er að við ræðum þessi mál gaumgæfilega af því að það er verið að draga fram alveg gríðarlega hagsmuni sem neytendur hafa af því og viðskiptavinir banka og greiðslumiðlana hafa af því að við skoðum þetta mál mun betur. Það er alla vega ljóst að það þarf að fara með málið núna milli 2. og 3. umræðu inn í nefnd aftur því að ég tel að sú breyting sem meiri hlutinn leggur hér fram sé beinlínis ógn við neytendur, a.m.k. er ekki hægt að gæta að hag neytenda og það verður að fullvissa okkur um að það sé hægt að takmarka kostnað sem lagður verður á viðskiptavini banka vegna millifærslna.

Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hann deili með mér ákveðinni tortryggni sem er svolítið að byggjast upp í mér gagnvart þessu máli. Mér hefur verið hugleikið þjóðaröryggi og það var tvímælalaust þannig að það var ástæða þess að þáverandi seðlabankastjóri vakti athygli þjóðaröryggisráðs á því hversu fáum erlendum aðilum greiðslumiðlun væri háð hér á landi. Að mínu mati var þjóðaröryggi ástæðan fyrir því skrefi sem var tekið og ég held að það hafi verið rétt að gera það. En á hinn bóginn þegar þetta mál er síðan í meðförum nefndarinnar og meiri hluta þingsins þá kemur fram þessi tortryggni: Af hverju er verið að taka þennan ventil þar sem er þó verið að tryggja neytendur? Hverra hagsmuna er meiri hlutinn að ganga í þessu máli að mati þingmannsins?

Ég ætla síðan í seinna andsvari mínu að koma inn á fákeppni banka. Ég myndi gjarnan vilja fá það fram frá hv. þingmanni hvernig hann sjái það fyrir sér, og ég kem að því á eftir, hvernig okkur geti auðnast að sjá meiri samkeppni, raunverulega samkeppni, á banka- og tryggingamarkaði.