154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

Seðlabanki Íslands.

662. mál
[22:27]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Varðandi þessar hindranir t.d. fyrir fyrirtæki að koma inn á þennan markað þá tel ég að hindrunin sé gjaldtakan hjá bönkunum og svo geta líka verið tæknilegar hindranir eins og kom fram í umræðum okkar hv. þm. Gísla Rafns Ólafssonar, það gæti verið viðurhlutamikið fyrir viðskiptamenn að komast inn í bankann í hvert skipti í staðinn fyrir að gefa bara beinan aðgang, gefa aðgang í símanum. Varðandi þjóðaröryggi og innlenda greiðslumiðlun þá er þetta mikið hagsmunamál vegna þess að tugir milljarða fara úr landi til stóru fyrirtækjanna. Danir hafa verið með DK-kort mjög lengi og önnur ríki, t.d. Noregur og Svíþjóð, hafa líka verið með sína eigin greiðslumiðlun. DK-kortin getur þú ekki notað úti í hinum stóra heimi nema það sé búið að samþykkja það þar, ég tel að það sé bara fyrir heimamarkað. Hins vegar hefur tækninni fleygt svo mikið fram að það geta margir aðilar mögulega farið inn á þennan markað út af internetbyltingunni. Það er stóra málið. Þess vegna eigum við að leyfa og opna samkeppni þarna. Hvaða hagsmunir eru þarna á bak við? Það er sagt að þetta sé inngrip Seðlabankans á samkeppnismarkaði. En í inngangi greiðslumiðlunartilskipunarinnar nr. 2 er fjallað mikið um samkeppni og reglurnar, sem ég fór yfir áðan, fjalla mikið um samkeppni og hóflegt gjald fyrir aðgang að bankareikningi. Þá finnst mér þetta algerlega óskiljanlegt. Það er líka sagt varðandi gjald fyrir afnot af innviðum að það sé heimild í 43. gr. og þá verði að taka þessa setningu út. Það er ekkert rökstutt af hverju bankinn má ekki setja mörk á gjaldtöku af hálfu greiðsluþjónustuveitenda. Það er ekkert rökstutt. Þú getur líka fært rök fyrir því að það sé bara til að tryggja það að reglurnar í lögum um greiðsluþjónustu séu í lagi, að það sé verið að fara eftir þeim vegna þess að ef gjaldið verður allt of hátt þá er verið að brjóta reglurnar. Svo einfalt er það. Þetta er ekkert inngrip. Ef þú grípur inn á markað þá ertu að stöðva eitthvert brot. Það er inngrip. Þarna er bara verið að setja reglur sem eru leiðbeinandi, sem kannski reynir aldrei á.