154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

Seðlabanki Íslands.

662. mál
[22:29]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Í skýrslu sem var gefin út á síðasta ári, 2023, kom í ljós, sem kemur reyndar ekki á óvart, að vaxtatekjur bankanna eru þær mestu, þ.e. þeir fá mestar tekjur af vaxtatekjum. Ekkert sem kemur á óvart. Árið 2022 voru þær 130 milljarðar og á fyrri hluta ársins námu þær 75 milljörðum kr. sem var fjórðungi meira en árið áður. Síðan segir í skýrslunni að þóknunar- og þjónustutekjur bankanna árið 2022 skiptust nokkuð jafnt niður á þrjú starfssvið; 31% kom frá einstaklingssviði sem sérstaklega þjónar heimilum, ríflega einn þriðji frá fyrirtækjasviði og síðan innan við einn þriðji frá eignastýringu og miðlun. Í heild jukust þjónustu- og þóknunartekjur bankanna þriggja um 10% á milli áranna 2021 og 2022 og fyrri part ársins 2023 voru þær 7,5% hærri heldur en árið áður. Er þetta ekki ágætisvitnisburður um það að bankarnir hér á Íslandi búa ekki við samkeppni heldur ríkir hér fákeppni á bankamarkaði sem á endanum bitnar alltaf á íslenskum heimilum og neytendum? Er hv. þingmaður sammála mér í því?