Seðlabanki Íslands.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur kærlega fyrir seinna andsvar. Það er svo sannarlega fákeppni á íslenskum bankamarkaði. Við sjáum það alveg sérstaklega vel með þóknunar- og þjónustugjöldin því að þau eru svo ógagnsæ. Prófessor Gylfi Zoëga hefur margoft bent á þetta. Hann skrifaði grein í Vísbendingu, sem hefur komið í fjölmiðlum líka, um að það er ekki hægt að bera saman þjónustugjöldin. Þú getur ekki borið saman hvaða þjónustugjöld Íslandsbanki er með á ákveðnu sviði og síðan Arion banki og Landsbankinn, þú getur ekki séð það, getur ekki borið þetta saman, þetta eru allt mismunandi gjöld. Það er svo mikið ógagnsæi á markaðnum. Ég tel að við hér á Alþingi Íslendinga ættum að setja reglur sem myndu miða að því að auka gagnsæi, auka samanburð, auka samkeppni. Þessi auka 10% hækkun í tekjum af þessum gjöldum milli ára segir okkur bara að það er ekki samkeppni. Þetta er sjálftaka á markaði. Það er ástæðan fyrir því að Flokkur fólksins vill ekki selja Íslandsbanka. Það er ekki samkeppni þarna. Þetta er grundvallaratriði.
Svo sér maður núna þessa nýju rafrænu tækni með greiðslumiðlun og að það á að fara að koma með reglur um það. Þá batt maður vonir við það að núna ætti að fara að gera eitthvað (Forseti hringir.) en þá kemur breytingartillaga um raunverulega eina ákvæðið sem gæti haldið uppi samkeppni og komið í veg fyrir að bankarnir hirði þann markað líka — sem ég spái eiginlega núna að muni gerast sennilega.