Seðlabanki Íslands.
Forseti. Mér finnst alveg áhugavert að hugsa um hvaðan við erum að koma og hvernig við erum komin hingað. Við erum að setja lög um greiðsluþjónustu og innviði og hámörk eða ekki hámörk á millifærslur eða þjónustukaup eða eitthvað því um líkt, á tilfærslu íslenskra króna frá einum aðila til annars. Þegar allt kemur til alls þá er það íslenska ríkið, og Seðlabankinn fyrir hönd íslenska ríkisins, sem á þessa blessuðu krónu. Það má einhvern veginn ekki takmarka samkeppnismöguleika einhverra til að nota íslensku krónuna til að hjálpa öðrum að skiptast á krónum og einhverju öðru á móti, með því að leyfa Seðlabankanum, sem á krónuna, ekki að setja ákveðin takmörk á þessa tilfærslunotkun. Ég átta mig ekki á því hvaða samkeppnissjónarmið eru þar á bak við. Maður hefur séð greiningar frá Neytendasamtökunum sem fjalla einmitt um hin óheyrilega mörgu þjónustugjöld og maður veit ekki hvað og hvað hjá bönkunum. Það er alls staðar verið að kroppa af krónunni. Þingflokkur hv. þingmanns hefur mikið fjallað um krónu á móti krónu skerðingar og við erum í raun með sama fyrirkomulagið þarna. Það að borga einhverjum krónu með þessum aðferðum í staðinn fyrir að nota krónuna sem er prentuð út eða slegin felur í sér óheyrilega mikinn aukakostnað. Maður myndi halda að Seðlabankinn segði: (Forseti hringir.) Nei, við eigum þessa krónu, við ráðum hvernig hún er notuð. En einhverra hluta vegna er samkeppni þarna á bak við sem er áhugavert að pæla í.