154. löggjafarþing — 120. fundur, 11. júní 2024.
Seðlabanki Íslands.
662. mál
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans ágæta andsvar. Þetta mál er að mörgu leyti áhugavert. Líkt og hv. þingmaður bendir á þá er þetta allt grundvallað á íslensku krónunni og það er mjög furðulegt að binda eigi hendur Seðlabankans að þessu leyti. Þetta mál, og breytingartillagan sem við ræðum, minnir mann óneitanlega á baktjaldasenur úr þáttum á borð við House of Cards.