154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

Seðlabanki Íslands.

662. mál
[22:49]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Þetta er nokkuð góð líking. Eins og ég sagði áðan þá er það Seðlabankinn, íslenska ríkið, sem á krónuna. Jú, það er hægt að leyfa öðrum aðilum að búa til aðferðir til að sýsla með þennan blessaða gjaldmiðil en Seðlabankinn, og í rauninni þingið, hlýtur alltaf að hafa eitthvað um það að segja á jákvæðan eða neikvæðan hátt og þess háttar.

Það er líka áhugavert, sem væri kannski nærtækara að grípa til þegar um svona samkeppnispælingar er að ræða, að það má í raun ekki nota aðra gjaldmiðla eða annars konar gjaldmiðla þrátt fyrir að við séum samt með fullt af öðrum gjaldmiðlum. Gjafakort eru t.d. ákveðinn gjaldmiðill, gömlu strætómiðarnir eru í raun ákveðinn gjaldmiðill og þess háttar. Rafmyntirnar eru orðnar svona formlegri mynd á öllum þessum hliðargjaldmiðlum, þegar allt kemur til alls. Af hverju er þetta ekki bara þannig að Seðlabankinn og íslenska ríkið segja: Við erum með krónuna, látið hana bara vera. Hún er til þess að passa upp á efnahaginn, uppgjör og efnahagsástand og þess háttar. Ef þið viljið vera í einhverjum fjármálagjörningum notið einhvern annan gjaldmiðil, þar sem þið getið verið með ykkar öpp og ykkar hámarksgreiðslugjöld o.s.frv. Notkun á krónunni er bara: Þegar ég læt þig fá krónu þá færðu krónu, ekkert annað. Það ætti að vera svona viðmiðið, held ég, til að koma til móts við skilyrði ríkisins um að standa skil á sköttum og gjöldum og þess háttar, að ekki sé verið að braska með þennan gjaldmiðil okkar.