154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

Seðlabanki Íslands.

662. mál
[22:51]
Horfa

Elín Íris Fanndal (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans seinna andsvar. Þegar öllu er á botninn hvolft þá eigum við hér á Alþingi ávallt að hafa hagsmuni neytenda í fyrirrúmi. Því hugnast mér ekki þessi breytingartillaga meiri hlutans. Kannski er lausnin að nota annan gjaldmiðil til að losna undan okri og braski fjármálakerfisins, að nota rafmyntir í staðinn. En mér finnst að við eigum að byrja á að taka til í fjármálakerfinu. En hugmyndir hv. þingmanns eru mjög áhugaverðar.