Seðlabanki Íslands.
Virðulegur forseti. Ég er nú bara enn að ná mér niður eftir þrumuræðu hv. þm. Eyjólfs Ármannssonar, þvílíkur eldmóður. En við fjöllum hér um frumvarp til laga um breytingu á lögum um Seðlabanka Íslands sem lýtur að auknu rekstraröryggi í greiðslumiðlun. Þetta frumvarp er afar mikilvægt skref í að tryggja öryggi og virkni greiðslumiðlunar hér á landi sem er ein af grunnstoðum fjármálastöðugleika. Undanfarin ár höfum við séð gríðarlegar tækniframfarir og aukna rafræna greiðslumiðlun en samhliða þessari þróun hefur netógnum fjölgað til muna í kjölfar alþjóðlegs óróa. Það er því brýnna en nokkru sinni fyrr að við hugsum og hugum að viðnámsþrótti og öryggi greiðslumiðlunar okkar.
Seðlabanki Íslands gegnir lykilhlutverki í þessu en hingað til hafa lagaheimildir bankans ekki verið nægjanlega skýrar til að hann geti gripið til nauðsynlegra aðgerða. Þess vegna er þetta frumvarp svo mikilvægt. Það styrkir heimildir Seðlabankans til að setja reglur sem auka viðnámsþrótt, öryggi og virkni greiðslumiðlunar. Í fyrsta lagi getur bankinn nú krafist ráðstafana til að tryggja rekstraröryggi eins og varðandi tengingar við fjarskiptainnviði, upplýsingaöryggi og varnir gegn netógnum. Í öðru lagi getur bankinn kveðið á um fyrirkomulag innviða fyrir innlenda greiðslumiðlun, t.d. fyrir rauntímagreiðslur á milli bankareikninga. Þetta er afar mikilvægt skref í að tryggja að við höfum fullnægjandi innlenda innviði sem geta nýst komi til alvarlegs þjónusturofs. Slíkir innviðir munu einnig efla samkeppni og nýsköpun í greiðsluþjónustu.
Öryggi og virkni greiðslumiðlunar snertir okkur öll og ég tel að afar mikilvægt sé að vernda þessa grunnstoð nútímasamfélagsins. Með styrkari stöðu Seðlabankans til eftirlits að þessu leyti getum við betur varið okkur fyrir mögulegum áföllum og búið í haginn fyrir framtíðina. Þótt þetta frumvarp sé tæknilegs eðlis snýst það í raun um þjóðaröryggi. Örugg og skilvirk greiðslumiðlun er forsenda þess að við getum stundað viðskipti, greitt laun, keypt nauðsynjar og lifað eðlilegu lífi. Án hennar færi allt fjármálakerfi landsins úr skorðum með ófyrirséðum afleiðingum. Þess vegna er svo mikilvægt að við höfum öruggt og skilvirkt eftirlit með greiðslumiðlun ef við ætlum að stuðla að þjóðaröryggi á tímum mikillar tækniþróunar.
Það er afar mikilvægt að vanda til verksins þegar kemur að regluverki sem þessu. Þegar við fjöllum um regluverk greiðslumiðlunar þá verðum við að hafa hugfast að hér undir falla fyrirtæki sem fara með fjármuni almennings og sjá um að miðla greiðslum og ávaxta fé. Það er því brýnt að gengið sé varlega til verksins og að við sjáum til þess að eftirlitsstofnanir hafi viðhlítandi heimildir til að tryggja virka samkeppni og stuðla að vexti nýsköpunar á þessu sviði. Þegar við ræðum um nýsköpun í fjármálageiranum og þá hnökra sem geta orðið á vegi nýsköpunarfyrirtækja á þessu sviði er vert að líta aðeins út fyrir landsteinana eftir dæmum um hvað getur farið úrskeiðis. Nýverið lenti fjöldi bandarískra fjártæknifyrirtækja í miklum vandamálum við að miðla greiðslum sínum eftir að upp kom sú staða að sá viðskiptabanki sem veitti þeim aðgang að sínu greiðslumiðlunarkerfi og sá milligönguaðili sem sá um að koma á samskiptum á milli fjártæknifyrirtækja og viðskiptabanka lentu í samningsdeilum. Þessi milligönguaðili er fyrirtækið Sinapps og viðskiptabankinn heitir Evolve. Vegna samningsdeilna þessara fyrirtækja gátu sem dæmi tugþúsundir notenda forritsins Yotta ekki leyst út af reikningum sínum fjármuni sem þeir töldu sig vera að leggja inn á öruggan bankareikning. Viðskiptabankinn rifti samningum við milligöngufyrirtækið og hefur því ekki lengur yfirsýn yfir það hvaða viðskiptavinir vilja framkvæma hvaða millifærslur. Svo best sem ég veit hefur þessi deila staðið yfir í rúman mánuð og enn þá er ekki búið að finna lausn á þessum vanda. Þetta er mjög svo bandarísk dæmisaga. Nýsköpunarfyrirtæki getur ekki greitt út af reikningum viðskiptavina sinna vegna þess að tvö enn þá stærri fyrirtæki eru í viðskiptadeilum. Eins og við þekkjum Bandaríkjamennina best hafa yfirvöld engin verkfæri til að skera á hnútana í deilunni.
Við viljum alls ekki að svona dæmisögur gerist á Íslandi í framtíðinni. Við viljum að fjártæknifyrirtæki vaxi og dafni án þess að það komi upp óvænt atvik sem ógna sparifé almennings. Þess vegna er það mjög svo varhugavert að meiri hlutinn leggi til breytingartillögur í þessu máli sem í reynd takmarka möguleika Seðlabankans til að tryggja sanngjarna samkeppni á þessum markaði fjártækninnar.
Breytingartillaga meiri hlutans leggur nefnilega til að orðin „gjald fyrir afnot af innviðum“ og „mörk á gjaldtöku af hálfu greiðsluþjónustuveitenda“ falli brott úr 2. gr. frumvarpsins. Þessi orð koma fram í því samhengi að undanfarinn er, með leyfi hæstv. forseta, að „Seðlabankanum er heimilt í þágu aukins viðnámsþróttar, öryggis og virkni greiðslumiðlunar og að fengnu samþykki fjármálastöðugleikanefndar að setja reglur um rekstraröryggi greiðslumiðlunar. Í reglunum er heimilt að mæla fyrir um nauðsynlegar ráðstafanir eins og …“ — og svo fylgir upptalningin þar sem kemur fram að meðal þess sem átti að veita Seðlabankanum heimild til að setja reglugerð um var annars vegar gjald fyrir afnot af innviðum og svo átti Seðlabankinn einnig að fá að setja reglur um mörk á gjaldtöku af hálfu greiðsluþjónustuveitenda. Þetta vill meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar fella brott.
Ég hef ákveðnar áhyggjur af því að ef þessi breytingartillaga nær fram að ganga og engin mörk eru á því hvað stóru aðilarnir á markaðnum geta rukkað minni aðilann um, fjártæknifyrirtækin o.fl., fyrir aðgang að sínum greiðslumiðlunarkerfum eða jafnvel gagnvart almenningi þá muni gjaldtaka af þessu tagi rjúka upp. Stóru aðilarnir á markaðnum á Íslandi hafa ítrekað verið staðnir að slíkum samkeppnisbrotum, svo sem í máli olíufélaganna, samráðið sem átti sér stað á milli Byko og Húsasmiðjunnar og nú síðast samráðið sem átti sér stað á milli Samskipa og Eimskips.
Það hefur sýnt sig að við þurfum að vera vel á varðbergi þegar tvö til þrjú fyrirtæki eru í yfirburða samkeppnisstöðu gagnvart öðrum. Hér á Íslandi virðist það nefnilega vera meginreglan að þau reyna að skrúfa upp verðið á sínum vörum með samráði. Það kom til að mynda mörgum á óvart hvað fjártæknifyrirtækið gat boðið upp á hagstæða vexti á innlánsreikningum og lág þjónustugjöld, mun lægri en það sem þekkist hjá stóru viðskiptabönkunum þremur. Hvers vegna skyldi það nú vera? Jú, það er vegna þess að viðskiptabankarnir eru svo góðu vanir og hafa ekki upplifað alvörusamkeppni áratugum saman. Þeir sjá því ekkert að því að rukka neytendur fyrir gjöld fyrir hvaðeina og bjóða upp á mun hærri vaxtamun inn- og útlána en þekkist í öðrum nágrannaríkjum okkar. Þeir halda einfaldlega að þeir komist upp með það um ókomna tíð að stunda okur gagnvart neytendum í þessu landi.