154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

Seðlabanki Íslands.

662. mál
[23:01]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Það er rosalega gaman að klóra sér aðeins í hausnum og hugsa: Hvernig erum við komin hingað? Kerfið — því er svo gjarnt að byggja ofan á sjálft sig. Við stoppum aldrei og spyrjum: Er þetta sniðugt? Er fyrirkomulagið sem við erum komin með núna að gagnast okkur á einhvern hátt? Hjálpar það fólki til að standa skil á sínu og geta skipst á vörum og þjónustu á skilvirkan hátt? Eða erum við farin að búa til kerfi sem hjálpar einhverjum öðrum að sýsla með efnahagskerfið sem slíkt, sem kemur almennum heimilum bara ekkert við, hjálpar bara til við alls konar brask og millifærslur og vexti og gjaldtökur og, eins og ég nefndi í andsvörum áðan, að búa til krónu á móti krónu skerðingar þannig að hægt sé að taka peninga af fólki? Þetta minnir mig pínu á — ég veit ekki hve margar hringingar ég fæ sem eru einhvern veginn svona: Góðan dag. Viltu gerast áskrifandi að þessari þjónustu eða viltu gerast styrktaraðili með mánaðargjaldi fyrir þennan málstað o.s.frv.? Það eru alls konar svona litlar beiðnir úti um allt sem kroppa alltaf meira og meira af; ógagnsæir skilmálar varðandi greiðslur, það má ekki vera neitt hámark o.s.frv. Eigum við ekki bara að fara að hugsa einhvern veginn öðruvísi og spyrja: Er þetta eitthvað sem er fyrir okkur eða er þetta bara fyrir einhverja aðra?