Seðlabanki Íslands.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Já, kerfinu er mjög svo gjarnt að byggja ofan á sjálft sig hér á Íslandi. Þeir sem eiga eru þeir einu sem mega. Þeir sem hafa völdin setja reglur sem koma í veg fyrir að aðrir fái sömu völd. Gott dæmi um þetta er kvótakerfið hér á Íslandi. Og eins og þingmaðurinn nefnir þá deili ég áhyggjum hans af því að upp spretti króna á móti krónu skerðingar víðs vegar í fjármálakerfinu, þjónustugjöld sem hækka, áskriftir sem ekki er hægt að segja upp o.s.frv. Trúðu mér, ég þekki það. Ég er áskrifandi að ansi mörgu sem ég bara get ekki sagt upp.